158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[14:23]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé mikilvægt að menn komi hér hreint og beint fram í þessari umræðu og í þessu púlti eins og þessi umræða hefur þróast hér. Verð ég að segja að mér finnst í raun og veru þá tvær leiðir koma til greina eða tvær útfærslur: Það er annaðhvort að sú nálgun eða sá málflutningur sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson hefur lagt hér fram og við sáum birtast í blöðunum í morgun er réttur og þá er hæstv. ráðherra að Inga Sæland að fara með rangt mál. Það er alvarlegt. Ef ekki, þá er það hin sviðsmyndin sem blasir við: Ef valkyrjurnar og hæstv. ráðherra Inga Sæland höfðu ekkert með þessi skilaboð (Forseti hringir.) að gera og koma algerlega frá aðstoðarmanninum sjálfum, þá er það náttúrlega enn þá dekkri mynd, virðulegur forseti, (Forseti hringir.) ef aðstoðarmaðurinn sjálfur hefur tekið það upp á sitt eindæmi að senda (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra þá skilaboð í nafni ríkisstjórnar án þess að vera með umboð til þess. (Forseti hringir.) Það er ekki síður alvarlegt. Við þessu þarf þingið að fá svör.