158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.

[14:25]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegi forseti. Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og mig langar að ræða stöðu barna af erlendum uppruna í íslenska skólakerfinu. Í PISA 2025 náðu aðeins 28% nemenda af erlendum uppruna grunnfærni í lesskilningi. Hér ræðir um fyrstu og aðra kynslóð barna með innflytjendabakgrunn. Það þýðir að 72% náðu ekki grunnfærni. Við erum að tala um lægstu viðmiðin, þrír af hverjum fjórum. Það er pínu dapurlegt að hér í pontu séum við alltaf að ræða um grunnfærni en ekki afburðafærni, að við séum á þeim stað með lesskilning í landinu að grunnfærni sé útgangspunkturinn í meira og minna öllu.

En við getum ekki notað fjölgun barna sem eru af erlendu bergi brotin sem afsökun fyrir almennu PISA-hruni Íslands. OECD hefur skoðað þetta sérstaklega. Fjölgun þessara barna hefur vissulega einhver áhrif á landsmeðaltalið. En svo ég vitni í OECD, frú forseti, þá skýrir breytt samsetning nemendahópsins aðeins fáein PISA-stig og það er ekki meginorsök þeirra breytinga sem við sjáum á svokölluðu hruni. Þessi börn eru ekki orsök PISA-vandans en PISA sýnir að við erum ekki nálægt því að ná vel utan um þau.

Þessi hópur barna er fjölbreyttur. Við getum verið með barn sem kemur hingað 14 ára og tekur prófið ári seinnaeða börn sem fæddust hér og ólust upp á Íslandi og á þessu verður að gera greinarmun. Í PISA 2022 mældust nemendur án innflytjendabakgrunns, íslensk börn, með 441 stig í lesskilningi og eru á sama róli og innflytjendur á Norðurlöndunum af annarri kynslóð. Íslensk börn, alin upp hér með íslenska foreldra, á sama stað, sama róli og börn af annarri kynslóð innflytjenda á Norðurlöndunum. Þetta er sláandi. Önnur kynslóð innflytjenda, börn fædd hér á landi af erlendum foreldrum og hafa alist upp í íslensku menntakerfi frá því að þau fæddust: 378 stig. Það munar á þessum börnum og íslensku börnunum 62 stigum, sem fyrir fólk sem áttar sig ekki á eru þrjú heil skólaár. Barn með erlenda foreldra og elst upp í kerfinu, meðaltalið: Það er með þremur skólaárum minna í menntun, í lesskilningi vegna þessa. Og það er þessi önnur kynslóð sem veldur mér mestum áhyggjum. Þetta eru börn fædd hér en eru samt þremur árum á eftir. Og gleymum því ekki, þremur árum á eftir hverjum? Samanburðarhópi sem stendur hræðilega illa, er við botninn í PISA.

Þetta kallar á markvissar aðgerðir. OECD hefur jafnframt bent á að tungumálafærni barna af erlendum uppruna sé ekki metin kerfisbundið í íslenska skólakerfinu. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvaða mælanlegu markmið ætlar ráðherra að setja ef aðeins 28% þessara barna eru með grunnfærni núna? Hvert á hlutfallið að vera árið 2030? Ef börn fædd af erlendum foreldrum eru 62 stigum eða þremur árum á eftir jafnöldrum sínum, hversu mikið á þetta bil að hafa minnkað árið 2030?

Mannaflinn. Ráðuneytið hefur sjálft birt niðurstöðu sem það kallar kerfislægan veikleika. Aðeins 12% þeirra sem kenna íslensku sem annað tungumál hafa sérhæfingu á sviðinu. Hvernig ætlar ráðherra að fjölga þessum kennurum og hvert verður tölulegt markmið árið 2030?

Loks eru það kennararnir sjálfir. Í sama bekk getur verið barn sem talar íslensku reiprennandi, barn sem er fætt hér en talar annað tungumál heima og er langt á eftir og svo kannski þriðja barnið sem kom til Íslands fyrir nokkrum mánuðum. Samt á kennarinn að mæta öllum þessum þörfum. Hvernig ætlar ráðherra að bregðast við því aukna álagi sem kennarar lýsa og er raunverulegt? Með sérhæfðum kennurum, með minni hópum, aukinni íslenskukennslu, kerfisbundnu tungumálamati eða eftirfylgni? Spyr sá sem hér stendur.

Við eigum ekki að benda á börnin. Við eigum að spyrja hvort kerfið sé að veita þeim þá íslenskukennslu sem þau eiga rétt á og hvort kennararnir hafi fengið réttu og góðu verkfærin og skólarnir mannaflann til þess. Ég vil sjá markmið, ég vil sjá mælikvarða og tímasetta áætlun svo við getum síðan mælt hvort börnin hafi náð raunverulega betri árangri. Við þurfum mælanleg viðmið sem við getum fylgt eftir. Annars eru þetta bara orðin tóm.