158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.

[14:30]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen hjartanlega fyrir að koma með þessa umræðu hér um íslensku sem annað tungumál. Það verður að segjast að ég hef verið sammála hv. þm. Jóni Pétri Zimsen í nánast öllum þeim áherslum sem hann hefur viljað draga fram hvað lýtur að menntun barnanna okkar.

Forseti. Við skulum hugsa okkur barn sem situr í skólastofu og skilur ekki það sem kennarinn segir. Barnið vill læra. Það vill eignast vini og það vill fá að taka þátt. En þegar hin börnin eru að hlæja skilur það ekki brandarann. Þegar verkefnið er útskýrt veit það ekki hvar það á að byrja. Ekkert barn á að upplifa sig einangrað í skólunum okkar. Ekkert okkar má sætta sig við að hæfileikar barns fari forgörðum vegna þess eins að við veitum því ekki þann stuðning sem þarfir þess krefjast.

Ég heimsótti Síðuskóla á Akureyri núna í síðustu viku. Þar sá ég metnaðarfullt starf við móttöku og íslenskukennslu nemenda með erlendan bakgrunn og frábæran árangur samhliða því. Ég hef verið upplýst um að þessi aðferðafræði eigi einnig við um aðra grunnskóla á Akureyri sem og á fleiri stöðum í samfélaginu okkar. Því er það verkefni okkar núna að styðja alla skóla sem glíma við þær áskoranir sem fylgja kennslu á íslensku sem öðru tungumáli. Búseta barns má aldrei ráða möguleikum þess til menntunar. Mín sýn er sú að komið verði upp aðstöðu fyrir kennslu í íslensku sem öðru tungumáli í öllum skólum sem þjóna börnum sem eru að læra íslensku sem annað mál.

Virðulegi forseti. Niðurstöður PISA, eins og hv. þingmaður kemur hér inn á, eru viðvörun sem okkur ber sannarlega að taka alvarlega. Barn sem lærir íslensku sem annað tungumál þarf að læra tungumálið og nota það samtímis til þess að læra stærðfræði, til að læra náttúrufræði og allar aðrar greinar sem á það er lagt að læra. Það segir sig sjálft að það gerist ekki án markvissrar kennslu. Börnin eru ólík. Sum eru nýkomin, önnur fædd hér. Sum hafa búið við öryggi, önnur flúið stríð og misst úr skólagöngu. Við verðum að mæta hverju barni þar sem það er. Stuðningurinn þarf að byrja snemma. Hann þarf að byrja strax í leikskóla og vara eins lengi og þörf krefur. Við þurfum einnig að huga að því að tæplega 30% grunnskólanema í dag eru með erlendan bakgrunn, 30%, virðulegi forseti.

Í gegnum þróunarverkefnið MEMM er unnið að betri móttöku, ráðgjöf og starfsþróun um allt land. Markmiðið er einfalt. Það er að hver skóli hafi þekkingu og verkfæri til að taka vel á móti þessum börnum og að geta kennt þeim. Ég mun einnig setja lestur og íslensku í skýran forgang ásamt því að styrkja, endurskoða og einfalda aðalnámskrá. Íslenska sem annað tungumál fær þar skýran sess, sérhæfða kennslu og námsefni sem hæfir aldri og stöðu hvers nemanda. Í næstu fjárlögum er gert ráð fyrir 455 millj. kr. viðbótarframlagi til íslenskrar námsgagnaútgáfu og þar munum við mæta þörfum þessara barna sem eru að læra íslensku. Við þurfum samfellda uppbyggingu námsefnis, ekki stakar bækur af og til. Kennarar eiga ekki að sitja kvöld eftir kvöld við eldhúsborðið heima og búa til námsefni sem menntakerfið sjálft á að veita þeim. Við þurfum líka að fjölga kennurum með sérhæfingu. Frá árinu 2016 hafa aðeins 15 kennarar útskrifast á landinu með einhvers konar sérhæfingu í íslensku sem öðru tungumáli. Það er víst enn langt í land með að við getum mætt þörfinni en við erum, hv. þingmaður, að fara þangað, svo sannarlega.

Samtal við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri er hins vegar hafið. Á morgun mun ég funda með hæstv. ráðherra háskólamála, m.a. um þessi mál. Ég mun vinna að fleiri námstækifærum og öflugri starfsþróun kennara og við verðum að hafa foreldrana með. Foreldrar sem eru að læra á nýtt samfélag þurfa skiljanlegar upplýsingar og greiða leið að skólunum.

Virðulegi forseti. Við eigum ekki að gera börnin að neinum sökudólgum vegna álags í skólunum. Við berum ábyrgð á umgjörðinni. Ríki, sveitarfélög og stjórnendur þurfa að tryggja kennurum námsefni, sérfræðiaðstoð og tíma til kennslu. Fækka þarf óþarfaskráningum og beina fjármagni þangað sem þörfin er mest. Við þurfum jafnframt að vita hvernig það nýtist. Meta þarf stöðu barna fyrr og fylgja framförum þeirra eftir. Upplýsingar og stuðningur mega ekki glatast þegar barn skiptir um skóla eða skólastig. Við eigum að grípa inn í áður en barnið missir trúna á eigin getu.

Í vetur legg ég fram endurskoðaða aðgerðaáætlun í menntamálum með skýrum markmiðum, ábyrgð, fjármögnun og tímasetningum og árangurinn mun verða birtur. Ég ætla að fylgja því eftir að breytingarnar skili sér alla leið inn í skólastofuna. Hinn nýi matsferill og nemendagrunnurinn eru einnig stórkostleg verkefni fyrir okkur.

Virðulegi forseti. Íslenskan opnar dyr að námi, vináttu og þátttöku. Okkar skylda er að hjálpa börnunum að opna þær dyr. Á bak við hverja tölu er barn sem á drauma, hæfileika og framtíð hér. Þessi börn tilheyra samfélaginu okkar. Þau eiga heima hér og þau eiga að finna það á hverjum einasta degi.