Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir að taka þetta mikilvæga mál hérna upp og þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að taka þátt í umræðunni. Nýjustu niðurstöður PISA sem kynntar voru fyrr í þessum mánuði tala sínu máli. Allt of lítill hluti nemenda af erlendum uppruna nær grunnhæfni í lesskilningi. Hjá börnum sem fæddust erlendis munar verulega á þeim og jafnöldrum þeirra og þessi hópur hefur vaxið verulega síðustu ár. Nær öll þessi börn tala annað mál en íslensku heima hjá sér.
En þetta er ekki aðeins menntamál. Á Norðurlöndum er tungumálið talið hluti af samfélagslegu áfallaþoli. Þegar hættuástand skapast þurfa allir íbúar að skilja leiðbeiningar og treysta stofnunum. Barn sem nær ekki tökum á íslensku í dag getur orðið jaðarsettur einstaklingur þegar kemur að öryggi samfélagsins. Ég hvet ráðherra til að beita sér í að gera íslensku sem annað mál að föstum hluta kennaranámsins. Sérhæfðir kennarar verða ekki til af sjálfu sér. Ég hvet ráðherra til að hlusta á kennara sem finna álagið á eigin skinni, finna álagið af því að starfa í skólastofu þar sem þarf að tala jafnvel mörg tungumál til að koma upplýsingum á framfæri. Fjármagn þarf nefnilega að fylgja hverju barni sem þarf aukinn málstuðning til þess að allir í skólastofunni fái þann stuðning og þá þjónustu sem þarf. Hæstv. ráðherra mun hafa stuðning minn í þessu verkefni. Þetta er fjárfesting í samfélaginu, þetta er fjárfesting í öryggi og þetta er fjárfesting í framtíð þjóðarinnar.