Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu. Það er óhætt að segja að niðurstöður úr PISA-könnun 2022, sem birtar voru fyrir nokkrum dögum, séu áhyggjuefni þegar litið er til íslensks skólakerfis. Niðurstöðurnar sýna verri árangur nemenda í þátttökulöndum miðað við fyrri kannanir en lækkunin er meiri á Íslandi í þeim samanburði og börnin okkar eru undir meðaltali OECD-landanna í lesskilningi. Það sem við ræðum hér í dag er sú staðreynd að það er mikill munur á árangri nemenda eftir tungumálabakgrunni. Börn af fyrstu kynslóð innflytjenda standa verr en aðrir nemendur ef marka má umrædda PISA-könnun en rétt er að taka fram að það er munur á árangri nemenda sem eiga erlenda foreldra eftir því hvort nemendur eru fæddir hér á landi eða ekki. Það er rétt að hafa í huga að nemendur á Íslandi skera sig ekki úr hvað þetta varðar þegar bornar eru saman niðurstöður á milli landa þar sem í flestum löndum skora nemendur sem hafa erlendan bakgrunn lægra í PISA-könnuninni en innlendir nemendur en það kann að tengjast tungumálafærni og jafnvel efnahagslegri og félagslegri stöðu og geri ég ekkert lítið úr því sem kom fram hjá hv. þm. Jóni Pétri Zimsen um að Ísland sé að skora lægra líka á þessum mælikvörðum.
Nýjustu niðurstöður PISA, 2022, sýna að börn með annað móðurmál en íslensku standa verr að vígi í lesskilningi en margir jafnaldrar þeirra. Þessi munur hefur aukist á milli kannana. Til að bregðast við þessari þróun þarf að leggja meiri áherslu á snemmtæka málörvun og markvissa kennslu í íslensku sem öðru tungumáli. Tungumálið er forsenda náms í öllum greinum og því skiptir mestu máli að börn sem koma ný inn í íslenskt skólakerfi fái öflugan stuðning frá fyrsta degi.
Jafnframt er ljóst að skortur er á kennurum með sérþekkingu á þessu sviði. Ef bæta á stöðu þessara barna þarf að fjölga kennurum sem hafa menntun í íslensku sem öðru tungumáli og efla endurmenntun starfandi kennara en kennarar hafa lýst yfir áhyggjum af auknu álagi þegar nemendum með annað móðurmál fjölgar. Við þurfum að eiga heiðarlegt samtal um það hvernig nauðsynlegar aðgerðir komist til framkvæmda og hvenær nemendur og kennarar geti búist við að viðeigandi aðgerðum verði komið á.
Að lokum, frú forseti: Þetta mál snýst ekki eingöngu um árangur í alþjóðlegri könnun. (Forseti hringir.) Þetta snýst um jöfn tækifæri barna til náms og þátttöku í íslensku samfélagi þeim sjálfum og samfélaginu til heilla. Niðurstöðurnar liggja fyrir. (Forseti hringir.) Áskoranirnar eru ljósar. Við þurfum að bregðast við þeim.