Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.
Virðulegur forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Jóni Pétri Zimsen, fyrir að setja þetta mál á dagskrá og hæstv. ráðherra fyrir ágætisviðbrögð hér áðan. En ég tek svo sannarlega undir að falleg áform og fögur fyrirheit eru góðra gjalda verð en eru ekki nóg í þessu sambandi. Það er ekki eins og þetta sé að gerast núna eða í fyrra eða hittiðfyrra. Sú sem hér stendur hóf að vekja athygli á stöðunni í skólastofum í grunnskólum landsins fyrir nokkrum árum, starfandi þá á öðrum vettvangi, en þetta hefur náttúrlega breyst svo gríðarlega hratt. Bara síðastliðinn áratug hafa börn af erlendum uppruna farið úr því að vera í kringum 10–12% í skólunum okkar upp í að vera, eins og hér hefur komið fram, 30%. Það segir sig sjálft að það er ekki í mannlegu valdi kennara að takast á við slíkar breytingar. Álagið hefur verið þvílíkt og veldur því að við erum komin á þennan stað, að við vitum ekki alveg hvernig eigi að bregðast við og verið er að leita leiða til þess.
Ég vil benda á að kerfið er mjög dreift og völdin í kerfinu eru mjög dreifð. Það er í höndum hvers skóla og sveitarfélags að ákveða hvernig þessum málum er háttað. Það væri til bóta að samhæfa verkefni og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins í þessum efnum og það er sannarlega það sem er verið að reyna að gera. En við þurfum að stíga þessi skref núna. Þetta snýst um framtíð barnanna okkar, af erlendum uppruna sem íslenskra, þetta snýst um framtíð Íslands. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að því, (Forseti hringir.) hvort hún geti komið inn á það hér í ræðu á eftir — tíminn er búinn. (Forseti hringir.) Ég held að ég biðji aftur um orðið á eftir.