Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.
Frú forseti. Við ræðum um stöðu barna í leik- og grunnskólum sem eru að læra íslensku sem annað tungumál. Ég vil þakka málshefjanda fyrir að eiga frumkvæði að þessari mikilvægu umræðu og hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir hennar innlegg. Hér er mikilvægt að greina á milli hugtaka. Börn með erlendan bakgrunn eru stór og fjölbreyttur hópur. Mörg þeirra tala íslensku reiprennandi, jafnvel þótt talað sé annað tungumál á heimili þeirra. En hér vil ég fyrst og fremst ræða um börn sem þurfa stuðning til að ná góðum tökum á íslenskunni. Íslenskan er annað og meira en ein af mörgum námsgreinum þessara barna. Hún er tungumál skólans, lykill barnsins að öðru námi, samskiptum, vináttu og þátttöku í íslensku samfélagi. Ef barn nær ekki nægilega góðum tökum á íslensku hefur það hamlandi áhrif alla skólagönguna og fram eftir lífi. Um þetta tel ég að við getum öll verið sammála.
Mikilvægt starf hefur verið unnið á þessu sviði. Ráðherra minntist á MEMM — menntun, móttöku og menningu. Mikilvægur þáttur þess verkefnis er einmitt að styrkja kennslu í íslensku sem öðru tungumáli. Þar fer fram stöðumat, unnið er með sérhannað námsefni og verkfæri fyrir skóla og veitt ráðgjöf til kennara og starfsfólks. Nú nær þessi ráðgjöf jafnframt til sveitarfélaga utan Reykjavíkur.
Við höfum verk að vinna. Í þessum málaflokki sem mörgum öðrum er stór viðhaldsskuld. Við þurfum fyrst og fremst að ná snemma til barnanna. Þar skiptir leikskólinn gríðarlegu máli enda gefst þar einstakt tækifæri til málörvunar á mikilvægum árum málþroskans. Við þurfum síðan, eins og fram hefur komið hér ítrekað, að tryggja skólunum fagfólk, kennsluefni og ráðgjöf og fylgjast markvisst með árangrinum. Og loks þarf að tryggja jöfnuð í þessu sem öðru. Það má ekki ráðast af sveitarfélagi, skóla eða einstökum kennara hversu góðan stuðning barnið fær. Þetta snýst ekki aðeins um skólagöngu þessa hóps barna. Þetta snýst líka um íslensku sem sameiginlegt tungumál okkar og um að öll börn sem alast upp geti tekið fullan þátt í íslensku samfélagi.