158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.

[14:50]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen, málshefjanda hér í dag, fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga málefni sem varðar íslenskukunnáttu barna af erlendum uppruna og kennslu í leik- og grunnskólum. Ég ætla nefnilega að tala um okkar allra bestu stofnun sem er leikskólinn. Ég veit að við erum öll sammála um að fyrstu árin skipti gríðarlega miklu máli fyrir máltöku barns, ekki síst barns sem heyrir litla íslensku heima hjá sér. Á Norðurlöndunum er horfst í augu við þetta. Þar er sums staðar meira að segja verið að tala um skólaskyldu fyrir ákveðna hópa. Ég er ekki að leggja það til hér í dag en við verðum að vera sammála um að það megi ekkert barn á Íslandi alast upp án þess að hafa fengið raunverulegt tækifæri til að læra íslensku. Þar er leikskólinn gríðarlegur hagsmunaaðili og við eigum að vera með skýr markmið þar. Ég hef heyrt talað um að hér skorti markmiðasetningu og fulltrúar úr síðustu ríkisstjórn tala hér gífurlega um metnaðarfull markmið sem voru ekki fjármögnuð þó að þau hafi verið sett fram. Ég vil benda á að fyrri ríkisstjórnir fluttu hér inn mikið vinnuafl, stóðu fyrir flutningi á mörgum erlendum aðilum án þess að nokkur heildarstefnumótun væri kannski akkúrat um það hvaða áhrif það hefði á íslenskt samfélag, gerðu sér ekki grein fyrir því að þetta var ekki bara vinnuafl heldur fólk.

Hv. þm. Jón Pétur Zimsen talar hér hins vegar um innflytjendur sem einn hóp og mér finnst mikilvægt að benda á að skýrslur OECD sýna það og sanna að það er algjör munur á því hvar barn byrjar í sinni máltöku, hvort það tekur þátt í leikskólanum, er þar virkur þátttakandi eða hvort það stendur fyrir utan. Ég bendi á skýrslu OECD frá 2024 um stöðu innflytjenda á Íslandi. Það er afgerandi munur á þeim börnum sem fengu að fara í leikskóla og lærðu þar íslensku og þeim sem ekki höfðu tækifæri til þess. Þess vegna vil ég nota síðustu sekúndurnar mínar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé ekki tími til kominn að gera leikskólanum hærra undir höfði í íslenskukennslu barna af erlendum uppruna (Forseti hringir.) og hvort það sé ekki hreinlega kominn tími til að lögbinda hann og lögfesta í íslensku skólakerfi.