158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.

[14:52]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir að taka upp þessa mikilvægu umræðu og hæstv. ráðherra fyrir sitt framlag. Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál eins og komið hefur verið inn á, staða erlendra barna í grunnskólakerfinu. Ég bendi í upphafi á að innflytjendastefnan á síðustu árum og áratugum, einkum kannski síðasta áratug eða tvo, hefur verið ósjálfbær með öllu og hugsunin hjá okkur á Alþingi verður að vera að skipta um kúrs á því sviði. Það er ljóst að ef fram heldur sem horfir mun þetta ekki skána, út frá því sem við höfum nú þegar séð. Það þýðir ekki að við grípum ekki til aðgerða núna og skoðum þetta ekki heildstætt út frá stöðunni eins og hún er orðin. Það er margt sem maður myndi vilja nefna, auðvitað margvíslegar aðgerðir sem þarf að gera til að styðja betur við þessi börn en líka að breyta aðeins um nálgun í kerfinu. Ég hef nefnt t.d. túlkaþjónustu fyrir foreldra. Mér finnst staðan í þeim málaflokki stundum hafa gefið til kynna viðhorf sem mér finnst ekki nægilega gott, t.d. um að það sé alveg eðlilega litið á það að vera hér árum eða áratugum saman en fá enn túlkaþjónustu við samskipti við skóla. Ég held að börnin læri það sem fyrir þeim er haft. Þetta er ekkert einfalt mál fyrir alls konar fólk að læra íslensku en ef við ætlum að láta eins og hér sé raunveruleg aðlögun í stöðunni í öllum þessum tilvikum þá verðum við að gera kröfur samhliða því sem við bjóðum upp á alls konar stuðning. Þannig að það er eitt og ég er með þingmál í vinnslu til að taka á þessu, hvort sem er hjá ríki eða sveitarfélögum.

Annað er auðvitað kjarni málsins einnig, sem er líka viðhorfsvandi, að það hafa verið ákveðnar fræðikenningar, sem ég lít svo á að séu að hluta til úreltar í raun, um að móðurmál barnsins sé lykillinn að allri annarri málkunnáttu. Þetta er líka kenning eða hugmynd sem við þurfum hægt og rólega að reyna að vinda ofan af því að eins og rannsóknir sýna og eins og málfræðingurinn Elín Þöll Þórðardóttir hefur bent á í mjög vandaðri grein nýlega um þetta þá er það mál samfélagsins sem börnin eiga raunverulegan möguleika á að verða fullnuma í (Forseti hringir.) og ná raunverulegum tökum á til lengri tíma þótt móðurmálið geti haft ákveðið menningarlegt og tilfinningalegt gildi. Þetta verðum við að horfast í augu við í skólakerfinu þar sem íslenskan á að vera númer eitt alls staðar, alltaf.