Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að efna til þessarar umræðu og hæstv. ráðherra fyrir að vera hér með okkur í dag. Við þurfum að horfast í augu við að okkur hefur ekki gengið nægilega vel hér og maður heyrir það á umræðunum að það eru allir sammála um að tungumálið okkar sé grunnurinn að því að við séum ekki að byggja upp stéttaskiptingu, að við séum að skapa samfélag þar sem allir hafi tækifæri, tungumálið sem bindur okkur saman, tungumálið sem gerir okkur að samfélagi. Það eru allir sammála um það. Það sem skortir hins vegar á er framkvæmdin, hvernig við náum þeim árangri sem stefnt er að. Ég vil undirstrika hér að peningar eru einn hluti af því. Við þurfum vissulega að fjárfesta en það sem skiptir mestu máli í því að við náum árangri er, rétt eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom inn á í sinni ræðu, að við þurfum að hafa mælikvarða og við þurfum að hafa aga og festu í framkvæmdinni sjálfri. Ef við höfum það ekki þá getum við haldið öll heimsins málþing eða eytt fjármagni eða aukið stuðning við kennara, sem eru allt mikilvægir þættir og lykilþættir. En það að mæla árangurinn og hafa aga og festu í framkvæmd er algjör lykill, þannig að eyðum tímanum í að fara yfir sviðið, sjá hvaða mælanlega árangri við ætlum að ná á næsta ári, næstu tveimur árum, á næstu fimm árum, búum til fjárfestingaplan og framkvæmdaplan og förum síðan í verkefnið skipulega og af aga og festu. Það er það sem þessi börn eiga skilið. Það er slík umgjörð.
Að lokum vil ég einnig segja að við þurfum auðvitað að hugsa um þessa hluti í samhengi við atvinnustefnu. (Forseti hringir.) Við þurfum að passa upp á að við séum alltaf að tryggja að það sé stuðningur fyrir hendi, (Forseti hringir.) að samfélagið okkar ráði við vöxt barna í skólakerfinu, þannig að þessir hlutir þurfa að vera í jafnvægi. Gerum þetta vel. Við erum öll sammála um þetta mál.