Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.
Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið áðan og þeim þingmönnum sem hér hafa tekið til máls, sérstaklega vil ég nefna hv. þm. Ingvar Þóroddsson með fína ræðu. Mig langar líka að bregðast aðeins við orðum hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur og segja að sá sem hér stendur hefur talað mikið fyrir leikskólunum, að það séu íslenskumælandi starfandi á leikskólunum. Ég veit að á Norðurlöndunum, t.d. í Noregi, fá börn með innflytjendabakgrunn afslátt eða ókeypis á leikskólann sem skiptir miklu máli en dregur ekki úr því að börn sem fæðast á Íslandi og eru í þeirri stöðu eru þremur árum á eftir jafnöldrum sínum, þrátt fyrir að hafa sum eða mörg hver gengið í gegnum íslenskan leikskóla.
En ég vil spyrja: Hvað á að breytast hvað árangur varðar? Ráðherra fór hér yfir málið en nefndi í rauninni engar tölur, engin viðmið, ekkert mælanlegt og engan tíma. Staðan er að 28% nemenda af erlendum uppruna ná ekki grunnfærni í lesskilningi í dag. Hver á staðan að vera 2030? Þau eru þremur árum á eftir jafnöldrum sínum og þá auðvitað fyrsta kynslóðin líka. 12% þeirra sem kenna íslensku sem annað tungumál eru ekki með menntun á sviðinu. Hvaða mælikvarða þurfum við þar? Við þurfum bara að fá þetta upp. Ráðuneytið er búið að horfa upp á þetta í mörg, mörg ár. Þetta byrjaði löngu áður en hæstv. ráðherra tók við ráðuneytinu og þeir ættu að geta sett niður mælanleg markmið á þetta hlutfall, 28%, og hver staðan eigi að verða 2030. 62 stiga bilið, hvert á það að vera 2030? Hvert á hlutfall sérhæfðra kennara að vera árið 2030? Við þessu verðum við að fá svör. Það verður að vera einhvers konar pressa og aðhald á fullorðna fólkið. Annars munum við ala upp kynslóð sem verður bara jaðarsett, stéttaskipting mun aukast og alls konar félagsleg vandamál munu skjóta upp kollinum, enn meira en er í dag. (Forseti hringir.) Þetta er gríðarlega mikilvægt mál og við sem þjóð verðum að taka á þessu. Þessi mælanlegu viðmið eru nauðsynleg og ég hvet ráðherra til að ígrunda það með fólkinu sínu í ráðuneytinu, íslenskum börnum öllum og samfélaginu til góða.