Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.
Frú forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Jóni Pétri Zimsen, aftur fyrir að koma með þessa góðu umræðu hérna inn í þingsalinn okkar, sannarlega þörf umræða, og ég þakka öllum hv. þingmönnum fyrir þátttökuna í þeirri umræðu.
Menntamál eiga að vera hafin yfir flokka eins og ég hef margsagt og börnin hafa engan tíma til að bíða eftir því að við hættum að rífast og komum okkur að verki, skólaganga þeirra er núna. Ég hef farið yfir nauðsyn þess að hefja stuðning fyrr, efla sérþekkingu og starfsþróun kennara og tryggja betri námsgögn. En mig langar að bæta nokkrum atriðum við. Við megum aldrei rugla saman takmarkaðri íslenskukunnáttu og takmarkaðri getu. Barn getur kunnað stærðfræði þótt það skilji ekki orðalagið í dæminu. Það getur haft ríkan orðaforða á móðurmálinu þó að íslenskuna vanti enn þá. Við verðum að sjá hæfileikana og byggja á þeim og gera kröfur og veita stuðning til að standast þær. Íslenskan lærist víðar en í kennslustofunni. Hún lærist á fótboltaæfingunni, í tónlistarskólanum og í samtali við vini. Þess vegna skiptir aðgengi að íþróttum og tómstundastarfi máli.
Ég vil sérstaklega taka það fram að við erum í raun og veru — eins og ég nefndi í inngangi mínum hér í fyrri ræðu, ég var að benda á það sem ég er að sjá í mínum störfum núna þegar ég er að heimsækja skólana, hvar vel gengur og hvar hlutirnir eru til fyrirmyndar. Ég kom og heimsótti Síðuskóla á Akureyri og þar inni sitja sjö börn frá sex löndum. Það var stórkostlegt að fylgjast með því, þau heilsuðu mér öll, tvö þeirra voru fædd á Íslandi en þurftu stuðning vegna þess að heima fyrir var ekki íslenska töluð. Það breytir ekki þeirri staðreynd að það er nákvæmlega þangað sem við verðum að fara. Allar mælingar hljóta líka að hjálpa og ég tek undir það, við þurfum mælingar og við þurfum viðmið. Við erum komin með matsferilinn og við erum að stefna að því að vera með samræmd próf. En þessi umræða snýst um íslensku sem annað mál. Hvað getum við gert? Þarna voru sjö börn inni. Þurfum við að fækka börnum? Hvað þurfum við að gera til þess að ná betur utan um þau? Við þurfum að gera námið fyrst og síðast skemmtilegt og byggja undir börnin félagslega þannig að þau fái þann stuðning sem þau geta fengið af skólafélögum sínum. Og ég get bara sagt að það var stórkostlegt að sjá þann árangur sem er að nást og þetta er ekki bara á Akureyri (Forseti hringir.) í hinu glæsilega akureyríska módeli, þetta er orðið á fleiri stöðum úti um landið og það ætla ég sannarlega að taka mér til fyrirmyndar og láta verkin tala.