158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026--2030.

131. mál
[15:21]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Já, ég er þeirrar skoðunar að fræðsla og forvarnir, fræðsla sérstaklega, sé það sem við eigum að leggja áherslu á. Við sjáum það líka, ef við tökum sem dæmi það sem hefur verið gert í sumum sveitarfélögum með eldri borgurum, nú fer ég yfir í þá, þar sem hefur verið lögð sérstök rækt við það að fara í forvarnastarf með þeim, hverju það hefur skilað í öllu tilliti, eins og Janus-heilsueflingarverkefnið er glöggt dæmi um. Það er því hægt að gera svo margt og skila góðum árangri með forvörnum og fræðslu. Þar hefur t.d. komið fólk sem hefur ekkert sinnt þessum málum eða yfirleitt kynnt sér áhrif mataræðis eða hreyfingar á sína eigin heilsu en hefur náð miklum árangri, þannig að það er margt hægt að gera með fræðslu og forvörnum.

Ég vara við því að fara að grípa inn í með skattahækkunum. Það var prófað hér fyrir allnokkru og lagt niður árið 2015, svokallaður sykurskattur. Áhrifin af því þóttu óljós og það þótti flókið í tollakerfinu og í viðskiptum að hafa slíkt kerfi þannig að ég vara náttúrlega við skattahækkunum en styð það eindregið að við gerum allt hvað hægt er til að lækka verð á ávöxtum og grænmeti og slíku sem á að vera öllum aðgengilegt en við vitum að svo er ekki endilega í dag. Þess vegna spyr ég í seinna andsvari, ég átta mig á því að það er dálítið yfirgripsmikið, en hvernig ættum við að skilgreina óhollustu? (Forseti hringir.) Erum við ekki komin dálítið fram úr okkur með því að fara að skilgreina hvað óhollusta er (Forseti hringir.) í stað þess að vera að fræða og efla forvarnir?

(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á að gæta ræðutímans. Það er dálítið um að verið sé að fara yfir ræðutímann.)