aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir andsvarið. Það er rétt að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur bent á að samfélagslegar aðgerðir séu mikilvægar og þetta sem ég er búin að nefna hér áður, að auðvelda holla valið og torvelda það óholla; ég hef meira að segja skrifað hér „kannski“ torvelda það óholla, þannig að ég er ekki strangari en svo. En við vitum að takmörkun á notkun viðbætts sykurs er mjög mikilvægur forvarnarþáttur gegn offitu og við vitum líka að verð skiptir miklu máli varðandi hvað keypt er í matinn. Þegar við erum að tala um óholla vöru þá erum við að tala um þær sem innihalda hátt hlutfall sykurs og salts og kannski hátt hlutfall fitu og þar sem um er að ræða gjörunnar matvörur sem fá auðvitað æ meiri athygli.
Í aðgerð nr. 1 er talað um að taka mið af ráðleggingum um mataræði og þær geta auðvitað verið afskaplega mismunandi milli landa. Framkvæmdin er að skipa þennan þverfaglega starfshóp og þar verði skoðaður fýsileiki þess að lækka álögur á grænmeti og ávexti og hækka álögur á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur ásamt því að sporna við markaðssetningu óhollra matvæla gagnvart börnum. Við vitum að það er mikið vandamál í mörgum löndum. Ég hef sjálf setið málþing með breskum börnum sem lýstu því að þau fái í símann snemma morguns tilboð um alls konar óhollar vörur. Ég held að þetta sé ekki jafn slæmt hérlendis en við verðum, eins og ég segi, að taka mið af stöðu þekkingar (Forseti hringir.) og öðru. Við förum ekki af stað með þetta nema aðgerðirnar séu óyggjandi.