aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svar og fyrir að skýra betur út hvert markmiðið nákvæmlega er með þessari aðgerð nr. 1. Ráðherra nefndi hér áðan að fólk taki ekki alltaf þá ákvörðun sem er því fyrir bestu. Ég er alveg sammála því. Það eru ekki allir alltaf að taka þær ákvarðanir sem eru þeim fyrir bestu. En ég er þar staðsettur í pólitíkinni að ég velti því fyrir mér hvort það sé endilega mitt að taka þá ákvörðun fyrir þau.
Ég væri til í að velta þessu aðeins meira upp, líka varðandi flækjustigið á framkvæmdinni. Ég geri mér grein fyrir að það er að einhverju leyti verkefni starfshópsins að skoða fýsileikann. Nú hefur það verið markmið ríkisstjórnarinnar að einfalda skattkerfið, það hefur verið talað um að loka hinum ýmsu glufum o.s.frv. og það er náttúrlega gott og vel. En ég velti fyrir mér hvernig þetta samræmist þeim markmiðum. Ef við erum að tala um, eins og hæstv. ráðherra var að koma inn á, gjörunna matvöru o.s.frv. — mér finnst þetta hljóma eins og mjög flókið skattkerfi að koma á laggirnar og vinna gegn þeim markmiðum sem hafa almennt verið yfirlýst, þ.e. að einfalda skattkerfið frekar en hitt.