158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026--2030.

131. mál
[15:32]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir seinna andsvar. Ég lít þannig á, eins og þingmaðurinn ýjaði að — auðvitað met ég líka frelsi einstaklingsins og ég er líka sammála John Stuart Mill sem líka lagði mikla vigt á frelsi, svo fremi sem það skaðaði ekki aðra. Það er auðvitað þannig að margt í þessu getur skaðað aðra, t.d. ef við erum að gefa börnum óhollan mat o.s.frv. Það þarf miklar bjargir í heilbrigðiskerfinu og þá notum við heldur ekki þá fjármuni í annað.

Þetta með hvernig svona virkar á skattkerfi; þetta eru algerar spekúlasjónir og ég ætla ekki að leiðast út í það þegar við erum ekki komin með niðurstöðu þessa hóps. En t.d. hefur það að merkja gjörunnin matvæli ekkert með skatta að gera þannig að ég held að við tökum þessa umræðu þegar búið er að útfæra tillögurnar, hvenær svo sem það verður.