158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026--2030.

131. mál
[15:41]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmönnum sem hér hafa tekið til máls fyrir góðar undirtektir. Ég skynja að þingmenn skilja mikilvægi þessa máls. Tíðni offitu í heiminum hefur þrefaldast, aukist um 300% á liðnum 50 árum og vandinn vex um 1–2 prósentustig á ári samkvæmt gögnum frá OECD. Það hefur engri þjóð tekist að spyrna við fótum og snúa þessari þróun við. Ég segi alltaf: Ef við getum það ekki, hver þá, við með okkar vel upplýsta samfélag, vel menntaða heilbrigðisstarfsfólk og góðu aðstæður hvað lýðheilsu varðar? Eins og ég nefndi í framsögu: Offita styttir ævilengd. Hún skapar álag á heilbrigðiskerfið og hún þarfnast svo sannarlega samfélagslegra og fjölþættra aðgerða.

Ég vil taka undir með hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur um að við þurfum að draga úr fordómum og við þurfum að koma umræðunni upp á æðra stig. Mér finnst það vera að þokast í rétta átt og það er ekki síst þess vegna sem ég legg þessa áætlun fram sem þingsályktunartillögu. Mér finnst vera þörf fyrir umræðu um þetta mikilvæga mál á vettvangi þingsins og ég er þess fullviss að það verður gagnleg umræða og rýni í hv. velferðarnefnd. Það er líka eðli þingsályktunartillagna að þær eru góð leið til að vekja athygli á mikilvægum málum og skapa umræðu í samfélaginu. Síðan eru hér aðgerðir sem snúa ekki einungis að heilbrigðisráðuneyti heldur öðrum ráðuneytum líka og þá er gagnlegt að hafa viljayfirlýsingu þingsins sem getur útvíkkað eignarhald á slíku málefni. Ég held ég hafi þetta ekki lengra, sér í lagi þar sem ég er að mæla fyrir málinu öðru sinni. Ég hlakka til að fylgjast með vinnu hv. velferðarnefndar.