landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég ætla nú bara að þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og góð svör og ætla að taka undir með henni að það sé gríðarlega mikilvægt að sá mikli gagnabanki sem við höfum safnað upp hér á Íslandi og varðar, leyfi ég mér að segja, heilsu og erfðir þjóðarinnar nýtist og ég vil bara hvetja til þess að við horfum svona vítt og breitt fram á veginn. Ég held að þetta sé líka kjörið tækifæri fyrir okkur til að laða að okkur rannsóknaraðila sem hefðu jafnvel áhuga á að fjármagna hér rannsóknir. Af því að ég þekki ágætlega til í lyfjageiranum þá sér maður fyrir sér til lengri framtíðar að það verði dálítið meira um einstaklingsmiðaðar meðferðir og að þær muni einmitt oft og tíðum taka mið af erfðaþáttum. Við eigum örugglega eftir að sjá í framtíðinni lyf sem eru sniðin að erfðabreytingum hjá mjög smáum hópum, svo dæmi sé tekið.