stjórnsýslulög.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á stjórnsýslulögum. Frumvarpið var ekki útrætt á síðasta löggjafarþingi og er þess vegna endurflutt. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði almenn heimild sjálfstæðra stjórnsýslunefnda sem leysa úr kærumálum til að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins.
Dómstólum á Íslandi hefur í 30 ár verið fært samkvæmt lögum nr. 21/1994 að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í málum þar sem vafi leikur á um hvernig túlka beri ákvæði EES-samningsins. Þó að álit dómstólsins séu ekki bindandi að íslenskum rétti hafa þau haft verulega þýðingu við skýringu á efni EES-reglna og túlkun innlendra réttarreglna sem byggjast á þeim. EFTA-dómstóllinn hefur í gegnum tíðina ekki aðeins veitt dómstólum frá EFTA-ríkjum álit heldur líka sjálfstæðum stjórnsýslunefndum, til að mynda frá Noregi og Liechtenstein. Á Íslandi er staðan hins vegar sú að engin sjálfstæð stjórnsýslunefnd hefur leitað álits hjá EFTA-dómstólnum, að undanskilinni kærunefnd útboðsmála sem hefur haft til þess lagaheimild frá árinu 2013 og nýtt hana tvisvar. Af úrskurðarframkvæmd þeirra stjórnsýslunefnda þar sem helst reynir á túlkun EES-reglna verður ráðið að heimild þeirra til að leita álits þyki ekki vera nægilega skýr vegna þess að lög nr. 21/1994 víki aðeins að heimild dómstóla til að leita álits en ekki stjórnsýslunefnda. Þessi staða tengist einnig frumkvæðismáli hjá Eftirlitsstofnun EFTA varðandi Ísland sem lýtur að því hvort umhverfisverndar-, útivistar- og hagsmunasamtök teljist hafa fullnægjandi aðgang að réttlátri málsmeðferð í samræmi við tilskipun um mat á umhverfisáhrifum.
Virðulegi forseti. Stjórnsýslunefndir geta, ekki síður en dómstólar, staðið frammi fyrir flóknum álitamálum á sviði EES-réttar. Að gera þeim kleift að afla álits við meðferð fordæmisgefandi mála getur dregið að einhverju leyti úr líkum á að dómsmál verði höfðað til ógildingar niðurstöðu nefndarinnar. Verði dómsmál höfðað er einnig ólíklegra að dómstóll hnekki niðurstöðu nefndarinnar vegna túlkunar á því atriði sem álitið varðar. Þá er ljóst að mörg þeirra mála sem sjálfstæðar stjórnsýslunefndir fjalla um koma ekki til kasta dómstóla, svo sem vegna þess að aðilar máls hafa ekki þau fjárráð sem nauðsynleg eru til að reka mál fyrir dómstólum eða vegna þess að þeir fjárhagslegu hagsmunir sem málið varðar eru of litlir til að málarekstur fyrir dómstólum svari kostnaði. Sú staða dregur síst úr mikilvægi þess að reglur EES-réttarins séu virtar.
Ég legg til að heimild stjórnsýslunefnda til að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins verði komið fyrir í stjórnsýslulögum í þeim kafla laganna sem fjallar um stjórnsýslukærur. Lagt er til að heimildin verði almenn, enda er það ekki löggjafans heldur EFTA-dómstólsins að meta það hvaða stjórnsýslunefndir séu nægilega sjálfstæðar að lögum til að teljast vera dómstóll eða réttur í skilningi samningsins um eftirlitsstofnun og dómstól. Samkvæmt frumvarpinu verður það á forræði nefndarinnar sjálfrar hvort ráðgefandi álits verður leitað. Aðili að kærumáli getur óskað eftir því að álits sé aflað en nefndinni er ekki skylt að verða við þeirri ósk. Hún metur sjálf hvort þörf sé á því að leita álits og horfir þar m.a. til þess hvort uppi sé réttlætanlegur vafi um túlkun EES-reglna og hvort skýring þeirra hafi raunverulega þýðingu fyrir úrslit málsins. Gert er ráð fyrir að ákvörðun nefndarinnar um hvort ráðgefandi álits verði leitað sé í formi úrskurðar. Þegar nefndin óski álits rofni lögmæltur afgreiðslufrestur málsins og haldi áfram að líða þegar dómur um ráðgefandi álit hefur verið kveðinn upp.
Verði frumvarpið að lögum munu stjórnsýslunefndir hafa sömu möguleika og dómstólar hafa haft í rúm 30 ár til að eiga samstarf við EFTA-dómstólinn um túlkun EES-réttar. Það gerir stjórnsýslunefndum hægara um vik að taka upplýsta ákvörðun um flókin álitamál á sviði EES-réttar og styrkir fordæmisgildi úrlausna þeirra. Það styrkir líka markmið EES-samningsins um einsleitni, þ.e. að tryggja að túlkun og beiting EES-reglna sé samræmd á Evrópska efnahagssvæðinu öllu.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og svo til 2. umræðu í þinginu.