stjórnsýslulög.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og ég skil vel hvaðan hv. þingmaður er að koma. Þetta er eitt af þessum álitaefnum sem koma oft upp og hafa komið upp í tengslum við þetta mál og ég hef sjálf velt þessu fyrir mér. Það liggur hins vegar fyrir að við erum aðilar að EES-samningnum og það er bæði verkefni dómstóla og stjórnsýslunefnda að túlka hann rétt. Þess vegna hefur staðan í Noregi og Liechtenstein verið með þeim hætti að þessi kostur hefur verið í boði. Við höfum verið eina EES-ríkið sem hefur ekki boðið upp á þennan valkost og eins og ég sagði hér áðan, allar hugmyndir um viðbótartöf — þessi kostur hefur verið t.d. í boði þegar kemur að kærunefnd útboðsmála síðan 2013 og í tvígang hefur hann verið nýttur. Meira að segja þegar kemur að dómstólum almennt skilst mér að þetta séu einhver 30 skipti á 20 árum sem dómstólar á Íslandi hafa leitað ráðgefandi álits, þannig að það er ekki verið að fylla allt kerfið af ráðgefandi álitum í gegnum tíðina. Það er líka þannig að aðilar máls geta ekki einhliða krafist þess að slíks álits verði óskað. Það eru aðilarnir í stjórnsýslunefndinni sem taka endanlega ákvörðun um það og gera það eftir þröngri skilgreiningu um hvort það sé eitthvert vafaatriði sem varðar túlkun á EES-samningnum. Minn skilningur, og ég hygg að það hljóti að vera útgangspunktur vinnunnar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, er einmitt að fá það á hreint að þetta sé til þess fallið að bæði bæta réttarmeðferð almennt á sviði stjórnsýslunnar og þessarar úrskurðarnefndar en líka að koma í veg fyrir tafir síðar í ferlinu ef dómum eða úrskurðum er hnekkt ofar í kerfinu.