158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

stjórnsýslulög.

100. mál
[14:25]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég tek til máls í annað sinn um framsögu þessa máls, þetta er í annað sinn, ef ekki í þriðja sinn, sem þetta mál er flutt hér um ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins og möguleika stjórnsýslunefnda á að leita eftir slíku undir meðferð stjórnsýslumáls. Ég hef ekki skipt um skoðun frá því sem hefur komið fram í máli mínu við fyrri meðferð þessa máls. Kannski er mér óhætt að segja nema síður sé, ég hef kannski styrkst í þeirri afstöðu minni að þetta frumvarp þarfnist mjög ítarlegrar skoðunar og ítarlegrar málsmeðferðar hér á þinginu, eigi það að ná fram að ganga og ef ekki með þeirri niðurstöðu að þetta mál verði látið bíða í einhvern tíma, þá verði það mögulega með verulegri breytingu á frumvarpinu. Ég hef bent á, og á það hafa fleiri bent, að hættan við þetta svona í grófum dráttum auðvitað við meðferð stjórnsýslumála er að stjórnsýslumál dragist eða tefjist vegna krafna aðila málsins eða vegna frumkvæðis stjórnsýslunefndarinnar eða stjórnsýslunnar sjálfrar að óska eftir áliti EFTA-dómstólsins í málinu. Ég held að það sé einboðið að verði það gert muni það tefja málsmeðferðina. Það er tekið fram í greinargerðinni að það hafi ekki í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð beint. Það gerir það auðvitað óhjákvæmilega vegna þess að það er meiri vinna fyrir stjórnsýsluna að sinna því. En það vantar hins vegar áhrifamat á hvað það myndi kosta fyrir aðila málsins. Það er alveg, held ég, óumdeilt eða það ætti að vera það að aðilar máls hljóta af því einhvern kostnað ef nýjum úrskurðaraðila eða einhverri nýrri málsmeðferð er bætt við hefðbundna stjórnsýslumeðferð. Það er útilokað annað en að aðilar máls muni vilja láta gæta réttar síns í þeirri meðferð og þegar af þeirri ástæðu er það einhver kostnaður. En látum það nú vera. Það er nú kannski bara kostnaður og mönnum finnst það kannski ekki skipta miklu máli og ég gæti tekið undir að það væri kannski aukaatriði.

Aðalatriðið í þessu máli er ákveðið réttarfarslegt prinsipp sem er það að EFTA-dómstóllinn fái hér fyrir fram auknar heimildir til að túlka Evrópuréttinn í stað þess að það sé látið eftir innlendum aðilum, hvort sem það eru stjórnsýslunefndir eða dómstólar. Ég gerði í sjálfu sér líka athugasemdir við það á sínum tíma að dómstólum væri fengin algerlega óheft heimild til þess að óska eftir forúrskurði EFTA-dómstólsins í málum sem þar eru til meðferðar og Hæstiréttur. Hæstv. forsætisráðherra hefur þá afstöðu eða virðist ekki hafa miklar áhyggjur af því að þessum beiðnum muni fjölga mjög og vísar til þess að þetta sé sjaldgæft á því sviði þar sem þetta er heimilt, þ.e. hjá dómstólunum og kærunefnd útboðsmála sem hefur þessa heimild í dag. Það sé sjaldgæft að þessarar heimildar sé neytt.

En ég bendi á það, sem kemur reyndar líka fram í greinargerðinni, að túlkun íslenskra laga og reglugerða sem hafa innleitt EES-reglu er flókin og flóknari en gengur og gerist almennt um túlkun landsréttar. Þetta er fullyrt hér í greinargerðinni og það má alveg til sanns vegar færa. Þar kemur ýmislegt til, eins og sagt er þar, löggjöfin sé rituð á mörgum tungumálum sem öll eru jafn rétthá. Það er einnig að gæta að því, eins og sagt er hér, að það sé ekki víst að hugtök hafi sömu merkingu í íslenskum rétti og samkvæmt EES-rétti. Hugtök kunna nefnilega ekki endilega að hafa sömu merkingu í íslenskum rétti og EES-rétti. Það er einmitt þetta sem ágætt er að hafa í huga. Ef svo stendur á um mál þá kann það að vera afar óheppilegt að erlendur dómstóll, EFTA-dómstóllinn, túlki réttinn.

Þess utan má bæta við þetta að ESA-rétturinn er sífellt að verða flóknari, fleiri mál sem eru tekin undir í EES-réttinum. Það er auðvitað þróun sem við munum ræða hér ef hæstv. ríkisstjórn ætlar að halda sig við sama heygarðshornið og hafa framsögu um bókun 35, þá er þetta auðvitað nokkuð sem kemur til skoðunar þar og vert að hafa í huga. EES-rétturinn er alltaf að verða flóknari og flóknari en á sama tíma er gerð einhver alveg ofboðsleg yfirlætisleg krafa til íslenskra stjórnvalda og löggjafans um að allar reglur og allar innleiðingar hér séu upp á punkt og prik og sé það brotið þá sé það af einhverjum óskiljanlegum ástæðum. Ástæðan er auðvitað sú að EES-rétturinn er ekki einhlítur og hann er það ekki einu sinni í huga Evrópudómstólsins. Evrópudómstóllinn skiptir um skoðun, ég segi ekki kannski frá ári til árs en tekur að sér að túlka reglur og búa til reglur, nýjar reglur, út frá reglum sem Evrópusambandið hefur sett. EFTA-dómstóllinn er auðvitað annars eðlis en Evrópudómstóllinn en á að vera svona einhvers konar hliðstæða og EFTA-dómstóllinn hefur mér virst, því miður, kannski farið að leita einum of mikið inn í stofnanir Evrópusambandsins og Evrópudómstólsins um túlkun sína á regluverki EES-samningsins og mögulega umfram tilefni og umfram það sem EES-samningurinn kann að kalla á.

Mér finnst þetta kalla á nokkra og djúpa umræðu um það kannski hver þróun EFTA-dómstólsins er svona almennt, þróun í dómum og forúrskurðum þar. Athygli mín var vakin fyrir stuttu á því og það birtust um það fréttir að það hefði fallið forúrskurður EFTA-dómstólsins á sviði skattaréttar í máli íslenska Skattsins sem þar var til umfjöllunar, um aðgang íslenskra skattyfirvalda, Skattsins, að gögnum hjá lögmönnum. Þar komst EFTA-dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að Skatturinn hefði ekki ótakmarkaðar valdheimildir til að ganga inn á skrifstofur hjá lögmönnum eða afla gagna hjá lögmönnum. Ég hefði getað komist að þessari niðurstöðu án þess að spyrja EFTA-dómstólinn og ég held að allir sanngjarnir menn hér á Íslandi hefðu getað komist að þessari niðurstöðu og alveg með ólíkindum að menn hafi þurft að bregða sér út fyrir landsteinana til að komast að þessari niðurstöðu, íslensk stjórnvöld eða íslensk skattyfirvöld. En gott og vel, það var gert. Það sem vakti athygli hins vegar í þessu máli er að þar teygði EFTA-dómstóllinn sig að einhverju leyti, að mér skilst, í réttindaskrá, mannréttindaskrá Evrópusambandsins til að komast að þessari niðurstöðu en hún er ekki hluti af EES-samningnum.

Það eru svona þættir sem ég held að skipti máli til að menn átti sig á hvernig EFTA-dómstóllinn virkar, hverjar hans valdheimildir eru almennt áður en farið er að veita honum eitthvert sérstakt hlutverk í rekstri stjórnsýslumála á Íslandi, stjórnsýslumála sem kveða aldrei upp úr um endanlega niðurstöðu. Niðurstaða í stjórnsýslumáli er alltaf kæranleg til annars stjórnvalds eða eftir atvikum er hægt að bera undir dómstóla og í málsmeðferð fyrir dómstólum er sannarlega hægt að kalla eftir forúrskurði EFTA-dómstólsins telji menn þörf á því.

Það er líka ósvarað í þessu frumvarpi, sem ég tel nú óhjákvæmilegt að taka á ef þetta frumvarp yrði að lögum, sem snertir bara málsmeðferðina, málsmeðferð stjórnsýslumáls, óskar eða beiðni í stjórnsýslumáli til EFTA um forúrskurð. Hvaða málsmeðferðarreglur eiga að gilda þar? Þar bendi ég á að stjórnsýslunefndir hafa ekki sömu reynslu og dómstólar og aðilar máls sem reka mál fyrir dómi af svona afmörkun lögfræðilegra álitaefna t.d. sem menn þurfa að hafa nokkuð góð tök á þegar fjallað er um lögfræðilegan ágreining fyrir dómi. En stjórnsýslunefndir eru mjög mismunandi hér á landi. Allar eru þær auðvitað ágætlega skipaðar en þær eru kannski misvel búnar til þess að takast á við málflutning eða þessa aðferðafræði sem þarf að liggja fyrir til þess að fá úr skorið um einhvern réttarfarslegan ágreining, þ.e. að afmarka lögfræðilegt álitaefni nægilega. Í því sambandi og þá í ljósi þess að þær hafa kannski ekki allar reynslu af því þá gæti það leitt til þess að spurningar til EFTA-dómstólsins sem lagðar eru fyrir hann og hann er krafinn svara um, gætu verið vanreifaðar eða óskýrar eða jafnvel til þess fallnar að flækja málið enn frekar fremur en að leysa úr álitaefninu sem liggur fyrir höndum í stjórnsýslunni.

Það er að mörgu að huga í þessu, virðulegur forseti. Ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd, ef ég heyrði rétt, til að taka málið til ítarlegrar skoðunar. Þótt frumvarpið sé bara ein lagagrein, það sé verið að skjóta inn þessari heimild, eru í því miklu fleiri hliðar og sjónarmið sem mjög mikilvægt er að fái vandaða þinglega meðferð og a.m.k. frá mínum bæjardyrum séð kemur ekki til greina að afgreiða þetta frumvarp óbreytt. Ætli menn sér að keyra það í gegnum þingið þá held ég að það væri einnar messu virði að finna á því flöt og gera þannig breytingar á þessu máli þannig að við það verði unað til lengri tíma. Þó að það séu, eins og hæstv. forsætisráðherra nefnir, ekki mörg dæmi um að menn nýti sér þessa heimild í dag þá ítreka ég þá fullyrðingu mína sem ég hafði hér uppi í andsvari að nái þetta frumvarp fram að ganga þá er einboðið að óskum um forúrskurði EFTA-dómstólsins muni fjölga verulega. Það tel ég ekki góða réttarþróun á Íslandi. Það þjónar kannski því helst að auka umsvif EFTA-dómstólsins, og útvega honum verkefni sem ég veit ekki hvort menn eru bugaðir yfir að séu kannski of fá, en þjónar miklu síður íslensku réttaröryggi í stóra samhenginu.