158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

stjórnsýslulög.

100. mál
[14:44]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er gott og vel að hv. þingmaður sé ánægður með sín störf og sína aðferð við innleiðingu á þessari auðtæku löggjöf sem ég tel reyndar að hafi falið í sér talsvert meiri gullhúðun en umræðan ber vitni um. En við geymum þá umræðu þar til síðar.

Ég vil samt vekja athygli á því, fyrst hv. þingmanni er umhugað um sjálfstæði íslenskra úrskurðarnefnda eins og hún hefur látið í veðri vaka, að við þessa innleiðingu var úrskurðarvaldi íslenskrar stjórnsýslu og íslenska ríkisins alfarið útvistað til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þessar niðurstöður eru ekki kæranlegar til EFTA-dómstólsins. Þessu væri ég ekki persónulega stolt af í innleiðingu á Evrópurétti út frá þeim ramma sem við höfum ákveðið að búa við hér á landi. Þetta er ekki í samræmi við íslenskt tvíeðli. En látum það vera.

Ég tel að hér sé um að ræða mikla mótsögn í ljósi þess að hér erum við að tryggja einsleitni. Það hlýtur að vera sjálfstætt takmark hverju sinni að sama Evrópureglan gildi alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Ég hef ekki heyrt, og ég bara ítreka beiðni um að fá útskýringar á því, hvernig við getum tryggt einsleitni hér á landi með öðrum hætti en lagt er upp með í þessu frumvarpi. Ég vil leggja áherslu á það að fyrst hv. þingmaður velti upp ákveðinni tortryggni gagnvart því að úrskurðarnefndir væru ráðandi aðili í að afla ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins, þá er eitt frægasta mál EFTA-réttarins, Restamark-málið mikla, sem ég veit að hv. þingmaður þekkir vel, runnið undan rifjum þess að það var úrskurðarnefnd sem leitaði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins og kvað upp úr um ráðandi réttarreglu um frjálst flæði vöru.

Ég ítreka því spurningu mína: Hvernig tryggjum við einsleitni á Evrópska efnahagssvæðinu með ábyrgum hætti þannig að einstaklingar og fyrirtæki í landinu líði ekki fyrir?