stjórnsýslulög.
Frú forseti. Ég þakka fyrir umræðuna hérna. Hún er að vísu orðin kannski fremur víðfeðm en segir kannski allt sem segja þarf um hvernig við erum farin að nálgast mál af þessu tagi. Auðvitað eigum við að gera það af gagnrýni en líka kannski bara að velta fyrir okkur hvernig EES-samstarfinu er háttað, hvað við ætluðum upphaflega að fá út úr því, hvernig við viljum sjá það þróast og hvernig þátttakendur við viljum vera í því.
Mig langaði kannski bara að hnykkja á einu örstutt í lokin, forseti. Hv. þm. Sigríður Á. Andersen kom svolítið að útvíkkun og ræddi hér um að við værum farin að sjá útvíkkun á valdsviði EFTA-dómstólsins. Ég ætla ekki að halda langa ræðu um það en bara svo það sé á hreinu í þessu máli þá gera samningar okkar um ESA og EFTA-dómstólinn ráð fyrir að svona stjórnsýslunefndir geti leitað ráðgefandi álits þannig að frumvarpið er ekkert að víkka út valdsvið EFTA-dómstólsins. Það er raunar þannig, skilst mér, í Noregi að þar hafa reyndar ekki verið sett sérstök lög með svona heimild eins og við erum að mæla fyrir hér, vegna þess að þar hafa þessar stjórnsýslunefndir einfaldlega ákveðið að fylgja almennum reglum og leita álits. Það hafa hins vegar íslenskar nefndir ekki viljað gera. Þessi afstaða nefndanna, að þykja svona almennar reglur ekki nægar, er m.a. ástæðan fyrir því að hér er verið að mæla fyrir þessu máli, það hefur verið eftirspurn eftir því. Bara svo það sé á hreinu þá erum við ekkert að breyta umsvifum eða valdsviði EFTA-dómstólsins. Það er einfaldlega verið að taka af skarið um að það séu ekki bara dómstólar sem geti nýtt þessa leið.
Það hafa líka komið hér fram áhyggjur af málsmeðferð og öðru slíku og þetta geti nú bara verið álit sem er hægt að klára og leita til með hjá dómstólum. En eins og kom fram bæði í andsvari mínu hér áðan og í framsögu þá rata ekki öll mál til dómstóla af margvíslegum ástæðum. Ég skil alveg þessar vangaveltur varðandi nýtinguna. Mér finnst hins vegar ekki hægt að hunsa það að við höfum ákveðin gögn hvað það varðar hvernig stjórnsýslunefndir og líka dómstólar hér á landi hafa nýtt þessa leið og ég sé ekki af hverju það ætti stórkostlega að aukast í þessu samhengi. Túlkun EES-réttar er alltaf samvinnuverkefni, það er vitað mál, og það er ekkert óeðlilegt við að bæta sjálfstæðum stjórnsýslunefndum inn í það samtal.
Svo vil ég bara í lokin segja — og það er í raun miklu stærri umræða sem verður eflaust tekin hér síðar í vikunni þegar bókunin verður tekin fyrir og almennt umræða um innleiðingu hjá EES — eins og hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir var að ræða hér áðan: Hvernig tryggjum við einsleitni? Viljum við að það sé hægt að ganga að því, ef þú ert að reka fyrirtæki eða ert almennur borgari, að það sé einsleitni í EES-regluverki? Auðvitað er afstaða fólks ólík og hvernig það sér heiminn en nálgunin er slík að þetta snúist alltaf um eitthvert vald frá Brussel sem hér sé að taka yfir, þetta snúist ekki um réttindi okkar borgara og okkar fyrirtækja til að starfa á sama markaði og fyrirtæki í öðrum EES-ríkjum.
Mig langar í því samhengi að veita stutta innsýn inn í fund, sem ég átti bara nú í morgun með forsvarsfólki frá atvinnulífinu um öll Norðurlöndin þar sem útgangspunktur þeirra samræðna var m.a. hvernig væri hægt að tryggja einsleitni í lagasetningu á Norðurlöndunum til þess að gera það að verkum að viðskipti milli landa og innan landa og fjölþjóðlegt samstarf, sem myndi styrkjast í þessum kjarna, væru auðveldari og fyrirtæki sérstaklega væru ekki að reka sig á vandræði í íslensku stjórnkerfi eða sænsku stjórnkerfi sem þau væru að reka sig á annars staðar. Ég nefni þetta bara sem dæmi. Þó að það sé afstaða hv. þm. Sigríðar Andersen að það sé bara hægt að breyta lögum þá er ástæðan fyrir því að bókunin er rædd í þessu samhengi og það er ástæða fyrir því að hagsmunaaðilar, m.a. hjá fyrirtækjum, gera athugasemdir þvert á lönd — þetta á ekki bara við á Íslandi — um innleiðingar og hvernig unnið er með evrópska regluverkið. Ástæðan er að þetta er flókið, túlkun er flókin og það koma upp vandamál af og til. Þetta hefur líka áhrif á réttindi og verðmætasköpun og það er í grunninn ástæðan fyrir því að við gengum inn í EES.
Ég vildi bara koma þessu að sem smá upplyftingu fyrir umræðu næstu daga. Annars þakka ég bara fyrir umræðuna og hlakka til að sjá hvernig meðferð málsins fer fram í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.