158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja.

155. mál
[15:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja. Frumvarpinu er ætlað að innleiða tvær Evrópugerðir um sama efni, en það var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Með frumvarpinu eru varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja í megindráttum skildar frá varfærniskröfum til banka og annarra lánastofnana. Með þessu móti er betur tekið tillit til sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig og unnt að hafa einfaldari og markvissari löggjöf fyrir verðbréfafyrirtæki en gæta jafnframt um leið að fjármálastöðugleika. Gerðar eru lágmarkskröfur um eigið fé og laust fé, settar eru reglur um stjórnarhætti og starfskjör, mælt er fyrir um birtingu upplýsinga og kveðið á um eftirlit Fjármálaeftirlitsins og viðurlög vegna brota.

Forseti. Í öllum helstu atriðum endurspeglar frumvarpið ákvæði Evrópugerðanna. Þó er lagt til að stærri fjármálafyrirtækjum verði áfram skylt að hafa innri endurskoðun þar sem hún er talin liður í því að treysta áhættustýringu og stjórnarhætti. Einnig er lagt til að hámark breytilegra launa í stærri verðbréfafyrirtækjum verði óbreytt frá því sem nú gildir, eða 25% af föstum launum, og að áfram verði óheimilt að greiða stjórnarmönnum þeirra breytileg laun.

Sjö verðbréfafyrirtæki starfa nú á Íslandi. Verði frumvarpið að lögum dregur það úr reglubyrði þeirra án þess þó að koma niður á viðnámsþrótti fjármálakerfisins, enda felur það í sér að verðbréfafyrirtækin falli undir lagaramma sem er sérsniðinn að þeim en ekki að starfsemi lánastofnana. Talið er að eitt eða tvö verðbréfafyrirtæki kunni þó að þurfa að auka eigið fé til að mæta nýjum kröfum.

Forseti. Innleiðing Evrópugerðanna er liður í því að uppfylla skyldur Íslands samkvæmt EES-samningnum og greiða fyrir þátttöku íslenskra fyrirtækja á hinum sameiginlega markaði Evrópska efnahagssvæðisins.

Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu. F