158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[18:28]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir sitt andsvar. Ég greindi ekki beina spurningu þarna en hv. þingmaður kom hingað upp til að róa taugar mínar sem kannski voru ekkert of spenntar. En mér finnst ansi sérstakt að hv. þingmaður sé að reyna að verja það að þetta frumvarp hafi ekki farið í samráðsgátt. Ætla stjórnvöld sem sagt að handvelja þá sem mega fjalla um og fá aðgang að frumvörpum af því að þau þykjast vita nákvæmlega hverjir eiga rétt á því og það eru bara einhverjir fáir einstaklingar? Þetta hljómar ekki vel úr munni hv. þingmanns, því miður, og þetta er að einhverju leyti gerræðislegt að mínu mati. Til að nefna það líka þá nefnir hann dæmisögu sem er sjaldan gott að nota hér sem einhvers konar rök fyrir einhverju. Menn geta komið með dæmisögur um í raun og veru allt milli himins og jarðar. En þegar fasteignaverð hækkar og fasteignagjöld um leið þá eykst kostnaður við rekstur íbúða og ef það kemst ekki að einhverju leyti a.m.k. til skiptanna leigusala og leigutaka er illt í efni. Þegar leigusalar hafa allt aðra fjárfestingarkosti fyrir framan sig heldur en að eiga sína leiguíbúð og leiguíbúðin gefur ekki af sér þá peninga sem gætu verið að ávaxta sig annars staðar er hinn kaldi raunveruleiki bara að það er hægt að selja eignina og þá missir einstaklingurinn, hvort sem hann er öryrki eða ekki, húsnæðið. Þannig að markaðurinn verður að einhverju leyti að fá að ráða þessu. Auðvitað á ekki að okra en ef það væri eðlileg samkeppni á markaðnum og Reykjavíkurborg hefði staðið sig í stykkinu við að byggja hér íbúðir sem menn gætu leigt þá væri staðan ekki þessi í dag.