húsaleigulög.
Forseti. Svo ég skýri betur út ræðu mína hér fyrr þá kom það nú fram í ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsens að hann hefði áhyggjur af leigjendunum. Það var alla vega í orði en kannski var það mögulega þannig á borði að hann hafði bara engar áhyggjur af leigjendunum þegar hann var upplýstur í ræðu um að bæði Leigjendasamtökin og síðan verkalýðshreyfingin fögnuðu málinu. Það voru einmitt þeir hópar, leigjendurnir, sem hann hélt að þetta myndi bara snúast í höndunum á en síðan var honum bent á að umræddir hópar sem hafa orðið af samráðinu bara fagni þessu. Ég held að það sé alveg ljóst að þetta mál er eitthvað sem við þurfum að fá. Það þarf að styrkja hér stöðu leigjenda, bæði atvinnurekenda og síðan leigjenda eins og öryrkjans sem fær allt í einu 75.000 kr. hækkun þegar leigusamningurinn rennur út. Og ég sé bara ekkert að því, herra forseti, að menn komi hingað með dæmisögu úr raunveruleikanum á Íslandi. Þetta er veruleikinn sem öryrkjar búa við, t.d. þegar samningurinn rennur út við fasteignafélög, þá er bara hægt að hækka upp úr öllu valdi. En þetta mál er liður í því að bæta stöðu þeirra.