húsaleigulög.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir seinna andsvar og ítreka það bara hversu sérstakt það er að ríkisstjórnin handvelji einhverja til að ræða frumvörp hér en setji þau ekki í samráðsgátt. Það er í raun stór-, stórfurðulegt. Ef einhver leigusali veður upp með verðið og það væri búin að vera almennileg stjórn á húsnæðismarkaði hér í borginni t.d. þá gætu menn einfaldlega farið úr því húsnæði, sem er auðvitað ekki ákjósanlegt þegar menn eru kannski með börn í skóla einhvers staðar. En rótin er bara framboð og eftirspurn. Við þurfum að fjölga leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði þannig að fólk geti búið í öruggu húsnæði án þess að stjórnvöld séu að búa til frumvörp hér sem að einhverju leyti handstýra markaðnum, sem aldrei mun ganga. Spyrjið bara í Stokkhólmi, spyrjið bara í Barcelona, farið til Frankfurt, farið til Chicago og athugið hvað legubremsan hefur gert þar. Hún hefur engu skilað öðru en að fækka leiguhúsnæði, hækka verðið og húsnæði hefur drabbast niður. Það er niðurstaðan.