húsaleigulög.
Herra forseti. Þetta mál veldur gríðarlegum vonbrigðum, enn eitt málið sem þessi ríkisstjórn kemur fram með sem virðist einfaldlega til þess fallið að gera lífið erfiðara fyrir landsmenn. Ég veit ekki hvort ríkisstjórnin hreinlega skilur ekki hvað hún er að leggja fram en alla vega er enginn ráðherra hér. Ráðherrann sem er að leggja þetta mál fram tekur ekki þátt í umræðunni. Það er enginn hér í salnum frá Viðreisn. Það er enginn í salnum frá meiri hlutanum nema hæstv. forseti. Ég vona að einhver komi hér í umræðuna því að þetta mál er algjörlega óúthugsað.
Ég vil bara segja að það er nú margt ruglað sem við erum að innleiða í gegnum EES-samninginn, til að mynda allt þetta um loftslagsskattana og loftslagsgjöldin en þetta frumvarp — þetta er heimatilbúið frumvarp sem nær ekki þeim árangri sem stefnt er að. Það er alltaf sama sagan með þessa ríkisstjórn, þau leggja eitthvað fram og gera ráð fyrir því að það verði engar hegðunarbreytingar við málin. Þetta er alveg eins og með skattahækkanirnar, með vörugjöldin á bílana. Þau gerðu ráð fyrir að það myndi innheimtast jafn mikið en að það yrðu engar hegðunarbreytingar. En hvað gerðist? Jú, fólk keypti auðvitað bíla fyrr. Svo er ósvífnin svo mikil að þau benda á það að þetta hafi ekki getað farið í samráðsgátt af því að þetta sé svo viðkvæmt. Gildistíminn er í júlí 2027. Þetta er sennilega eina frumvarpið þar sem er fyrirsjáanleiki. Eina frumvarpið þar sem mátti ekki vera ófyrirsjáanleiki og þá er fyrirsjáanleiki. Auðvitað mun íbúðum fækka, fólk mun hækka verð og hvað gerist? Fólkið sem er verið að vernda — og nú er ég komin að spurningunni — af því að hv. þm. Jón Pétur Zimsen benti á og sagði, með leyfi forseta: Ætla þau að vera vinir litla mannsins en grafa svo undan honum? Og því spyr ég: Er ekki fyrirséð að íbúðaverð mun hækka?