húsaleigulög.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir sitt seinna andsvar. Það liggur í raun í hlutarins eðli að ef þú ert með bundið fjármagn í íbúðum eða íbúð sem þú ert að leigja út, það er gert erfiðara fyrir þig, meiri flækja, meiri kostnaður, meira vesen, hvers vegna ekki að losa það fjármagn, fjárfesta í einhverju sem er bara laust þegar þú vilt og þarft á að halda? Þú færð ekki símtal um það að það leki inn á baði eða það sé komin sprunga í glugga heldur bara ávaxtar peningurinn sig inn á bók vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki getu til að lækka vexti og verðbólgu. Þá er þetta svona kannski ójafnt að jafna saman og mun örugglega bara fækka íbúðum á markaði sem eru í leigu. Þetta er kannski málað upp sem einhver svona draumaheimur, að vera að leigja einhverjar íbúðir sem leigusali. Ég held að það sé ekki alltaf þannig. Auðvitað er bara best þegar samband leigusala og leigutaka er gott og sanngjarnt verð ríkir. Það ætti að vera. En ég held að þessi leigubremsa verði ekki til þess fallin að auka líkurnar á því.