158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Þessi vika sem nú er gengin í garð er af Kvenfélagasambandi Íslands tileinkuð einmanaleika, tilfinningu sem getur verið ósýnileg en hefur djúp áhrif á líf fólks. Við hugsum oft um einmana manneskju sem einhvern sem býr einn, situr alltaf einn í matsalnum eða á fáa að en rannsóknir sýna að málið er ekki svo einfalt. Fólk getur verið einmana í fjölmenni. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áætlar að einn af hverjum sex í heiminum upplifi að vera einmana. Það hlutfall er eins og hér væri um að ræða tíu þingmenn. Það sem vekur þó sérstaka athygli í þeim rannsóknum sem kynntar hafa verið er að einmanaleikinn er algengastur meðal ungmenna. Um einn af hverjum fimm ungum einstaklingum upplifir einmanaleika. Einmanaleiki er líka meðal eldra fólks. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur líka bent á að um 12% eldra fólks upplifi einmanaleika.

Virðulegur forseti. Það er staðreynd að félagsleg einangrun og einmanaleiki getur haft áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu fólks. En við verðum að muna eitt mikilvægt atriði þegar rætt er um einmanaleika: að vera einn er ekki það sama og að vera einmana. Maður getur notið þess að vera einn, lesið bók, farið í göngutúr eða einfaldlega notið þess að eiga félagsskap með sjálfum sér. Einmanaleiki snýst nefnilega um skort á tengingu við aðra, tengingu sem við öll þurfum á að halda.

Virðulegur forseti. Í þessari viku skulum við ekki aðeins tala um einmanaleika heldur um tengsl. Hringjum í þann sem við höfum ekki heyrt í lengi, höfum samband við einhverja sem eru einir, spyrjum ungan einstakling hvernig honum líði. Gefum okkur tíma fyrir afa og ömmu, nágrannann eða vinina. Stundum getur nefnilega stutt samtal skipt sköpum og stundum er það mikilvægasta einfaldlega að vera til staðar.