158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Í seinustu viku var kjördæmavika og við þingmenn Norðausturkjördæmis áttum mörg góð samtöl og vorum hvattir til góðra verka. Einn af rauðu þráðunum í samtölum okkar þingmanna kjördæmisins við sveitarstjórnarfólk, sérstaklega á Norðurlandi eystra, var staðan á Kristnesi. Öll lögðu þau áherslu á að stjórnvöld þyrftu að koma fram með skýra framtíðarsýn. Bráðabirgðalausnir hafa fundist fyrir endurhæfingarþjónustuna á Akureyri og starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri á stórt hrós skilið fyrir þá vinnu sem það hefur lagt á sig til að standa vörð um þjónustuna í erfiðum aðstæðum. En þessi staða er ekki sjálfbær til lengdar og við verðum að hafa það í huga að það munar miklu um það að starfa í bráðabirgðaúrræði ef fyrir liggur að varanleg lausn verði tilbúin, segjum árið 2028, 2029 eða 2030. Fólk þarf að sjá ljós við enda ganganna. Það ljós vantar í dag. Óvissan er vond og tíminn vinnur ekki með okkur. Hún er sérstaklega varasöm á landsbyggðinni þar sem hætta er á að fólk flytji burt og með því tapist sérfræðiþekking sem hefur tekið langan tíma að byggja upp.

Virðulegi forseti. Hér þarf að greina á milli tveggja verkefna. Annars vegar þarf að bjarga fasteignunum á Kristnesi. Þetta eru verðmæti ríkisins og við viljum ekki að þarna verði til draugabær á besta stað í Eyjafjarðarsveit. Þar þarf fjármála- og efnahagsráðherra að leiða vinnuna. Hins vegar þarf heilbrigðisráðuneytið að móta framtíðarsýn fyrir endurhæfingarþjónustuna og segja skýrt hvernig henni verði háttað til lengri tíma. Ef þessi verkefni leysast saman þannig að Kristnes verði aftur miðstöð endurhæfingar á landsbyggðinni fagna ég því. Þar er frábært umhverfi fyrir slíka starfsemi. Þetta er þó stærra mál en Kristnes eitt. Nýlegar fréttir um að fimmtungur húsnæðis Reykjalundar sé lokaður vegna viðhaldsþarfar undirstrika þörfina fyrir framtíðarsýn um endurhæfingu á landsvísu.

Ég fagna því að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi kynnt drög eða hvítbók um endurhæfingarþjónustu í samráðsgátt. Það er gott og mikilvægt skref með áherslu á jafnt aðgengi og samfellda þjónustu. Húsnæðismálin eru utan umfjöllunar hvítbókarinnar og því þarf að tryggja að lausn þeirra haldist í hendur við stefnumótunina. Ég hvet ráðherra til dáða og til að fylgja þeirri vinnu eftir með skýrum ákvörðunum og tímasettri áætlun um framtíð þjónustunnar fyrir norðan. Starfsfólk og sjúklingar þurfa að vita hvert við stefnum.