Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin fagnar því að samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs verði hallarekstri ríkissjóðs snúið í afgang. Að fagna því núna er svolítið eins og að fagna því að hafa náð tindi Everest á meðan maður stendur enn í grunnbúðunum. Í fjárlögum ársins 2026 var gert ráð fyrir 28 milljarða kr. halla. Núverandi horfur gera hins vegar ráð fyrir 67,5 milljarða halla. Þar munar nærri 40 milljörðum. Til samanburðar er gert ráð fyrir tæplega 5 milljarða afgangi á næsta ári. Það skiptir þó máli hvernig við ætlum að komast þangað. Aðhald á útgjaldahliðinni þarf að vera meginverkefnið. Auknar álögur eru ekki sjálfbær leið til að mæta vaxandi útgjöldum ríkisins. Skattar hafa áhrif á hvata fólks og fyrirtækja til fjárfestinga og verðmætasköpunar. Við þurfum framleiðnivöxt til að halda uppi hagvexti, styrkja skattstofna og tryggja sjálfbær ríkisfjármál til lengri tíma. Ríkisfjármálin skipta líka máli í baráttunni við verðbólguna. Hún mælist nú 5,9% og hefur farið fram úr verðlagsforsendum kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Á fimmtudag rennur út frestur til að ákveða hvort kjarasamningarnir haldi og útlitið er ekki gott. Seðlabankinn hefur haldið vöxtum háum til að ná verðbólgunni niður, sveitarfélögin hafa lýst sig reiðubúin til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% og kallað eftir sambærilegu aðhaldi ríkisins. Ríkisstjórnin hefur nú boðað að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5% haldi kjarasamningarnir. Aðrar skatta- og gjaldahækkanir eru þó enn fyrirhugaðar.
Virðulegi forseti. Peningastefnan, fjármál hins opinbera og vinnumarkaðurinn þurfa að vinna saman ef ná á verðbólgunni niður. Þar þurfa ríkisfjármálin að leggja sitt af mörkum með trúverðugu aðhaldi á útgjaldahliðinni. Stefnum ótrauð á tindinn en bíðum með að fagna þar til toppnum er náð.