158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Hér í þessum sal vorum við að ræða leigubremsu í gær sem er ákveðið mál sem á eftir að fara betur yfir síðar. Leigubremsa er þó eitthvað sem við í Sjálfstæðisflokknum þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessa dagana þar sem við búum leigulaust í höfðinu á hæstv. ríkisstjórn og þá sérstaklega Samfylkingarinnar, sem þessa dagana hamrar þannig lyklaborðið á óskráðum fjölmiðli sínum um allt sem Sjálfstæðisflokkurinn segir og gerir. Þetta eru verk fólks sem er algerlega ófært um að líta í eigin barm, fólk sem sagði eitt fyrir kosningar en gerir annað núna, allt þvert á það sem var lofað. Ég skil að þetta særi stoltið, ég átta mig fyllilega á því, en að taka það út á stjórnarandstöðunni með skítkasti og stundum hreinu bulli er lítilmannlegt. Örfá dæmi: Fyrir nokkrum mánuðum talaði hér einn hv. þm. Samfylkingarinnar um skattagrýlu, samdi mikið jólakvæði í þessu ræðupúlti sem átti að gera lítið úr varnaðarorðum Sjálfstæðisflokksins um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. En hver var svo staðreynd málsins? Gegndarlausar skattahækkanir á skattahækkanir ofan sem allir, sem höfðu sæmilega kunnáttu á reiknivél, bentu á að myndi hafa bein áhrif á efnahag landsins, efnahaginn sem þessi ríkisstjórn lofaði og var kosin til að laga.

Formaður efnahags- og viðskiptanefndar var síðan í viðtali á dögunum þar sem hún sagði blákalt í beinni útsendingu að krónutöluhækkanir í nýju fjárlagafrumvarpi væru taktískt útspil hjá ríkisstjórninni, eins og hún væri Heimir Hallgrímsson á leiðinni á Evrópumeistaramótið. Hæstv. fjármálaráðherra var þó fljótur að bera þetta til baka. Sami hv. þingmaður Samfylkingarinnar var síðan í öðru viðtali á dögunum beðinn um nokkur dæmi um hvernig hæstv. ríkisstjórn væri að hjálpa atvinnulífinu í þessu landi. Hún taldi upp þrjú dæmi, það voru bankaskattur, veiðigjaldaskattur og baðlónaskattur. Það eru sem sagt skattar sem eru farnir að blása atvinnulífinu hér í landi byr undir báða vængi. Þetta heldur auðvitað engu vatni, það segir sig sjálft. Ef sitjandi ríkisstjórn ætlar að taka slíkar ákvarðanir, sem raun ber vitni síðustu tvö ár, sem hafa bein áhrif á vexti, verðbólgu og atvinnuleysi, þarf fólk að standa með orðum sínum og gjörðum. Núverandi ríkisstjórn tók ákvörðun um að hækka álögur á fólkið í landinu. Núverandi ríkisstjórn tók ákvörðun um að hækka álögur á fyrirtækin í landinu (Forseti hringir.) þvert á varnaðarorð stjórnarandstöðunnar og margra sérfræðinga. Margt stórt gerir eitt risastórt og nú horfum við fram á ögurstund í kjaramálum landsins. Ef hæstv. ríkisstjórn (Forseti hringir.) ræður ekki við verkefnið þá á hún bara að segja til því að það er hægt að laga það vandamál. Það væri a.m.k. ágætisbyrjun (Forseti hringir.) að líta inn á við.