158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Fjölskyldur og fyrirtæki þurfa fyrirsjáanleika. Heimilin þurfa að geta skipulagt bílakaup, félagsstarf barna og sumarleyfi, svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækin þurfa stöðugar forsendur fyrir ráðningu á starfsfólki og fjárfestingum í nýrri tækni. Breytingar og óljós gjaldtökuáform gera hvort tveggja erfitt. Ábyrgur rekstur ríkisins er grundvallaratriði. Við styðjum markmið um jafnvægi í ríkisfjármálum en ekki sama hvað það kostar. Þegar ríkið hækkar gjöld og skatta án samræmingar vinnur það gegn fyrirsjáanleika. Slík ringulreið leggur auknar byrðar á heimili og verðhækkandi áhrif hennar eru hluti verðbólguvandans. Þess vegna þurfum við að breyta umræðunni um álögur á heimilin, horfa á samtölu gjaldahækkana, frystingu bóta og skerðingarmarka, möguleg áhrif bankaskatts á lánskjör og verðhækkanir á verðtryggðar skuldir, svo dæmi sé tekið. Við í Framsókn höfum metið áhrif af fyrirhuguðum breytingum fjárlagafrumvarpsins á ólík heimili. Í dæmunum okkar getur viðbótarkostnaður hlaupið á hundruðum þúsunda króna á ári eftir forsendum. Þar eru bæði bein útgjöld og áætluð áhrif húsnæðislána.

Virðulegur forseti. Heimilissáttin er svar Framsóknar til að auka gegnsæi. Reiknivélin sem við birtum í þessari viku færir umræðuna úr milljörðum ríkissjóðs yfir í áhrifin á fjárhag fjölskyldna og einstaklinga. Við viljum meira gagnsæi, það eykur traust. Við verðum að meta samanlögð áhrif hækkana áður en ákvarðanir eru teknar. Liður í þessu er samræming á gjaldtöku ríkis og sveitarfélaga til þess að stuðla að lægri verðbólgu, vernd heimila sem hafa minnst svigrúm og tryggja fyrirtækjum meiri fyrirsjáanleika.