Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar að tala um ofbeldi, þann mikla vágest sem er að hreiðra um sig í samfélagi okkar, ekki síst af hálfu karla, ungra karla, miðaldra karla og jafnvel enn eldri karla. Á fyrri helmingi þessa árs, frá janúar til júní, voru tilkynnt 346 kynferðisbrot. Það eru nálega að jafnaði tvö á dag, tvö kynferðisbrot á dag allan fyrri helming þessa árs. Hér þurfum við að standa í lappirnar og aðhafast til að þetta ofbeldi fái ekki breiðst um allt land og verði viðvarandi því að e.t.v. er það svo að ofbeldi á Íslandi er orðið léttvægt fundið.
Nýjasta dellan, mig langar að orða hana svo, er að teipa ungmenni á fótum og höndum og fyrir munn og skilja það eftir fyrir utan heimili sitt svo það engist í sálarangist sem mun fylgja því ævina á enda, rétt eins og kynferðisbrotin 346 sem ég nefndi áðan, vegna þess að ofbeldi er á allan máta ógeðslegt og mun fylgja fólki sem verður fyrir því alla ævina á enda, konum, börnum og eftir atvikum körlum.
Við verðum að aðhafast eitthvað hvað varðar löggæslu, e.t.v. löggjöf og ég tala nú ekki um hjá heimilum og skólum. Við þá sem stunda ofbeldið vil ég segja eitt: Þið meiðið en ofbeldið mun líka fylgja ykkur alla ævina á enda. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)