158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[14:31]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Það var sumt sem mér fannst vera mjög gott í ræðu hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra benti á að það væri mjög mikilvægt fyrir okkur að standa vörð um EES og enginn getur gert það betur eða með ríkari skyldu en hæstv. ráðherra. Þess vegna hef ég furðað mig á því, vegna þess að það er svo mikilvægt að standa vörð um EES, hver viðbrögð eða viðbragðsleysi hæstv. ráðherra og ríkisstjórnar hefur verið þegar Evrópusambandið braut EES-samninginn, braut á okkur með því að setja verndartolla á íslenskar iðnvörur, brjóta fjórfrelsið. Við erum búin að vera frá fyrsta degi, frá fyrsta degi, sem aðilar að innri markaðnum, aðilar að EES. Þegar þeir brutu á okkur, sem þeir undirbjuggu í 11 mánuði og ríkisstjórnin vissi af því en lét okkur í þinginu ekki vita af því, þá sagði hæstv. ráðherra að það væri ásættanlegt. Það væri ásættanlegt. Hæstv. ráðherra sagði í ágætri ræðu að við ættum að standa raunverulega vörð um EES. Spurning mín er sú: Hvernig fer það saman að standa vörð um EES-samninginn og segja að það sé ásættanlegt að Evrópusambandið brjóti á grunnforsendum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið?