158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[14:33]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil mótmæla því harkalega að það hafi verið eitthvert viðbragðsleysi af hálfu íslenskra stjórnvalda eða norskra. Við fórum í mjög harkalega málafylgju og hagsmunabaráttu en á endanum verðum við að horfast í augu við það að við erum ekki í tollabandalaginu. Reyndar hefur norskt atvinnulíf síðan bent á að þau vilja, sérstaklega út af þessu máli, út af nákvæmlega þessu máli, fara í tollabandalagið, ekki endilega fara beint inn í Evrópusambandið en vilja kanna hvort Noregur geti fengið aðild að tollabandalaginu. Þetta eru m.a. viðbrögð norsks atvinnulífs svo við getum bent á það.

Við munum halda áfram að berjast fyrir því að samningurinn verði virkur. Ég vil sérstaklega draga fram að ég vona að hv. þingmaður sem var að spyrja hér áðan sýni það bæði hér í ræðu og síðan með atkvæðagreiðslu að hann ætli að standa vörð um EES-samninginn; að það sé ekki verið að hlaupa og reyna að benda á eitthvað annað til þess að komast hjá því að taka afstöðu í þessu máli. Mér þætti bara vænt um það ef þingmenn Sjálfstæðisflokksins færu nú að tala skýrt í þessu máli en, eins og ég segi, ekki vera með þessa hálfvelgju eða vita ekki í hvorn fótinn þeir eigi að stíga af því að Miðflokkurinn er á einhverri allt annarri leið. Ég hvet hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að hugsa ekki um sig sem einhvern síamstvíbura Miðflokksins. Hagsmunamálið er miklu stærra og meira en að það sé verið að leika sér að þessu. Þetta eru alþjóðaskuldbindingar okkar Íslendinga við mikilvægasta viðskiptasamning sem við Íslendingar höfum gert fram til þessa. Ég bara ætlast til þess að reyndir þingmenn og fyrrum ráðherrar standi vörð um þennan samning.