158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[14:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra þarf ekki að hafa áhyggjur af Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að því að standa vörð um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. En ég vek athygli á því hvað hæstv. ráðherra sagði hér. Ef ég hafði áhyggjur áður en ég fór í þetta andsvar þá hef ég miklu meiri áhyggjur núna. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið gengur út á fjórfrelsið. Það er grunnurinn að því. Það er það sem menn börðust fyrir. Ég og hæstv. ráðherra eigum það sameiginlegt að þegar við gengum í Evrópska efnahagssvæðið þá börðumst við fyrir því. Nú segir hæstv. ráðherra að við séum ekki í tollabandalagi og er að verja gjörðir Evrópusambandsins, þegar Evrópusambandið braut á okkur, samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Ef Ísland gætir ekki hagsmuna Íslands þá gerir það enginn. Því miður (Forseti hringir.) var hæstv. ráðherra hér að staðfesta að hún er ekki að gæta hagsmuna okkar (Forseti hringir.) og er ekki að gæta hagsmuna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. (Forseti hringir.) Það er grafalvarlegt.

(Forseti (BHar): Forseti biður hv. þingmenn um að virða tímamörkin.)