Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Það er fátt verra og alvarlegra en þegar þingmenn, og það reynslumiklir þingmenn, eru að leggja fólki orð í munn. Þessi ríkisstjórn varðist með kjafti og klóm til að koma í veg fyrir viðskiptaþvinganir á kísilmálm. Það sem hins vegar er rétt sem hv. þingmaður sagði er að fjórfrelsið virkar en það verður að virka. Þetta er ekki bara einstefnustræti. Þetta er ekki eins og einhver konfektkassi, EES-samningurinn. Það virkar ekki þegar við erum með innleiðingarhalla og búin að vera í áratugi, líka undir hv. þingmanni þegar hann var ráðherra. Það þýðir ekki að við ætlum bara, eins og ég segi, að umgangast EES-samninginn eins og okkur hentar, ekki uppfylla okkar skuldbindingar, ekki framfylgja því sem við þurfum að framfylgja. Mér finnst enginn manndómsbragur yfir þessum málflutningi af hálfu hv. þingmanns. (Gripið fram í.) Þess vegna eigum við að standa vörð um EES-samninginn, ef fjórfrelsið á að virka, (Gripið fram í.) ef fjórfrelsið á að virka (Forseti hringir.) þurfum við að klára innleiðingarhallann. Við þurfum að klára bókun 35 og ég skora á hv. þingmann að koma með mér í þá vegferð. (GÞÞ: Það er á ESB að standa við sitt.)
(Forseti (BHar): Forseti biður um hljóð í salnum.)