158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[14:40]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fæðingarorlofsmálið hefði náttúrlega aldrei komið til ef Alþingi Íslendinga hefði staðið sig í stykkinu og innleitt bókun 35. Síðan er spurt: Af hverju ætti að þurfa stjórnarskrárbreytingu til að breyta lögskýringarreglum landsréttar? Þær eru óskráðar og ástæðan fyrir því að Hæstiréttur gat ekki á endanum framfylgt bókun 35 í máli Önnu Bryndísar var sú að forgangsreglan hafði ekki verið lögfest eins og við þekkjum og þess vegna erum við að ræða þetta, ekki af því að hana vantaði í stjórnarskrá heldur af því við höfðum ekki lögfest hana hér á Alþingi Íslendinga. Af hverju ekki að verjast? var spurt hér áðan og mér heyrist hv. þingmaður vera að gera það líka. Hæstiréttur hefur staðfest að forgangsreglan er ekki lögfest líkt og bókun 35 kveður á um og stefna ESA snýr að því en ekki öðru.