Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra fullyrðir hér að fæðingarorlofsmálið hefði ekki komið til hefði bókun 35 verið innleidd. Staðreyndin er sú að Ísland hafði innleitt reglugerð Evrópusambandsins um samræmingu almannatryggingakerfisins fyrir löngu. Það vissi hins vegar enginn, ekki einu sinni Evrópudómstóllinn eða Evrópusambandslöndin hvað fólst í þeirri reglugerð. Íslenskir dómstólar þurftu meira að segja að spyrja EFTA-dómstólinn um mögulega þýðingu þessarar reglugerðar, þannig að það er ekki rétt sem hæstv. ráðherra segir um þetta atriði.
Mig langar hins vegar að spyrja hann um aðra blekkingu og rangfærslu sem hún hefur haldið fram og sent út myndband á samfélagsmiðlum um litla stúlku sem þurfti að sækja rétt sinn vegna sælgætiskaupa í sjoppu. Hún hafi, vegna skorts á bókun 35, ekki getað höfðað mál nema á hendur litlu sjoppunni. Samt liggur fyrir í málinu að barnið höfðaði málið gegn Biðskýlinu Njarðvík og CU2 ehf. og voru dæmdar bætur úr hendi beggja, þ.e. söluaðila og framleiðanda. Það liggur fyrir í málinu. Af hverju fer hæstv. ráðherra með þessa rangfærslu hér og lætur að því liggja (Forseti hringir.) að þetta mál snúist um réttindi lítilla barna þegar síðan í kjölfarið lögum um skaðabótaábyrgð var breytt (Forseti hringir.) til samræmis við Evrópusambandsreglur og réttarvernd litlu stúlkunnar í þessu máli skert stórum? Í dag gæti hún ekki einu sinni höfðað mál á hendur sjoppunni.
(Forseti (BHar): Forseti vill ítreka ábendingu um að virða tímamörkin sem eru knöpp í þessum andsvörum.)