158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[14:43]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það síðasta. Stúlkan hefði alltaf fengið bætur. En skýringin … (Gripið fram í.) — Já, hún fékk bætur en skýringin er ekki sú af hverju bara hún fékk frá söluturninum … (SÁA: Ekki frá söluturninum.) — Ekki frá söluturninum heldur frá framleiðandanum. (SÁA: Báðum.)

Ég skil vel af hverju hv. þingmenn Miðflokksins og formaður þingflokks þeirra eru mjög órólegir. Það sem Miðflokkurinn er að leggja hér til er að það verði ekki Alþingi Íslendinga sem ákveði um niðurstöðu í þessu máli, að það verðum ekki við sjálf sem ákveðum hvaða lög eigi að gilda hér á Íslandi heldur vill Miðflokkurinn hér á Íslandi fara með málið til útlanda og láta aðra ákveða það sem við getum ákveðið í þessum þingsal (Gripið fram í: Af hverju …?) Hver er nú þjóðernisástin í þessu?

Niðurstaða nýlegra dóma Hæstaréttar er skýr og afdráttarlaus og hún sýnir að 3. gr. EES-laganna er lögskýringarregla en ekki forgangsregla. Hæstiréttur segir að það sé ekki í samræmi við bókun 35, það er alveg skýrt. Það er ekki í samræmi við bókun 35 og það er einmitt vandinn að þegar túlkun dugar ekki tryggir núverandi regla ekki þann forgang sem (Forseti hringir.) bókun 35 gerir. Þess vegna er ég að segja, eins og til að mynda dæmið með Önnu Bryndísi, að þá erum við ekki að tryggja (Forseti hringir.) réttindi einstaklinga og erum ekki að tryggja réttindi þeirra sem reka fyrirtæki hérna, ekki síst lítil og meðalstór fyrirtæki.