Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir sína framsögu í þessu máli. Ég vil geta þess í upphafi að málið hefur tekið mikið pláss í umræðunni. Ég hygg að ástæða þess sé annars vegar sú að stjórnarliðar tala kannski hér eins og um sé að ræða eina allsherjarlausn á öllum þeim vandamálum sem fylgja því að samræma íslenska löggjöf við EES-réttinn og hins vegar að þeir sem tortryggja málið óttast að í því felist einhvers konar brot á stjórnarskránni.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra út í það hvort hún sé ekki sammála mér í því að hér eftir sem hingað til skipti mestu að innleiða EES-reglurnar í innlend lög, þ.e. ég tel að réttaráhrif þessa frumvarps séu mjög takmörkuð. Þetta verði takmörkuð tilvik sem ættu í raun og veru ekki að koma upp nema okkur hafi einmitt mistekist hér í þessu húsi að færa EES-reglurnar, eins og okkur ber að gera, inn í innlend íslensk lög.