Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrirspurnina. Ég varð svolítið vongóð þegar hv. þingmaður byrjaði að tala um að þetta mál hefði tekið pláss og ég hugsaði: Já, nú eru menn komnir með einhverja raunveruleikatengingu aftur í söguna. Af því að það er nákvæmlega það sem hefur gerst að Alþingi Íslendinga hefur ekki náð að klára þetta mál. Fyrri ríkisstjórnir undir forystu Sjálfstæðisflokksins náðu ekki heldur að gera það. Þannig að mér finnst mistökin felast í því að Alþingi Íslendinga nái ekki að klára þetta mál, þetta réttindamál sem tengist bókun 35, með sómasamlegum hætti héðan úr þingsal.
Niðurstaða Hæstaréttar frá því fyrir tveimur vikum segir að íslenskum stjórnvöldum hafi átt að vera þetta ljóst í rauninni frá 2011, þannig að þeir þingmenn sem m.a. töluðu hér á undan eru í rauninni að tala í þversögn við það sem Hæstiréttur segir. Þannig að mér finnst við hafa alla þessa leiðsögn í íslensku samfélagi frá okkar grundvallarstoðum þegar við horfum á þrískiptingu ríkisvaldsins og þess vegna segi ég: Mér finnst meiri bragur á því að framkvæmdarvaldið leggi fram þetta frumvarp, með vísun í Hæstarétt, (Forseti hringir.) og þá kemur löggjafarvaldið og segir: Já, við ætlum að klára þetta mál með sómasamlegum hætti, það er á okkar ábyrgð (Forseti hringir.) og við ætlum að uppfylla okkar alþjóðlegu skuldbindingar sem tengjast EES-samningnum.