158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[15:58]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Sum dómsmál viljum við einfaldlega ekki vinna, sagði hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir hér í pontunni áðan. Við hin vitum þó alla vega hverja við viljum ekki hafa í okkar varnarsveit komi til þess að málið fari fyrir dómstóla. Það sem mig langar hins vegar að spyrja um, af því að vikið var að því í ræðu hv. þingmanns, er þessi samanburður við Noreg, að Noregur væri jú enn fullvalda ríki. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Er það mat hv. þingmanns að stjórnarskrá Noregs, sem tók breytingum 1962, inniberi sambærilegar valdframsalsheimildir og stjórnarskrá Íslands?