158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[15:59]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir spurningu. Ég stend við orð mín. Mig langar ekki til þess að Ísland fari og reyni að sækja sigur fyrir EFTA-dómstólnum í þessu máli sem varðar bókun 35. Ástæðan er einföld. Mig langar ekki til þess, hef enga velþóknun á þeirri sviðsmynd að hér á Íslandi ríki ekki einsleitni gagnvart EES-réttinum, að hér sé ekki hægt að ganga að því vísu að EES-rétturinn gildi með sama hætti og í Noregi og Liechtenstein, að hér sé einhvern veginn annars konar fjórfrelsi en á Evrópska efnahagssvæðinu öllu. Það hefur ekkert að gera með fullveldisframsal eða bein réttaráhrif. Þetta er bara regla sem við tókum á okkur í formi þjóðréttarlegrar skuldbindingar 1993 og tók gildi 1994. Þetta var réttarástand sem við bjuggum við 2010–2013 og svo var það meitlað í stein 2024 að það væri ekki lengur virk forgangsregla í EES-réttinum. Mig langar til þess að laga þetta. Mig langar til þess að fara aftur í gamla góða Ísland sem ég þekkti, þegar forgangsreglan var skýr. Ég kem inn á norsku stjórnarskrána í mínu seinna andsvari því ég hef margt um hana að segja.