Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil biðja hv. þingmann afsökunar á því að hafa ekki náð að koma mér að spurningu hans um norsku stjórnarskrána og vík mér að henni leiftursnöggt. Norska stjórnarskráin, 115. gr., tel ég, leyfir skilyrt, afmarkað valdframsal í þágu alþjóðastarfs, að því virtu að þrír fjórðu hlutar þingheims samþykki það, og meira að segja þurfa tveir þriðju þingsins að vera viðstaddir. Þetta er bara útfærsla í stjórnskipunarlögunum og þetta er að mörgu leyti mjög snyrtileg leið.
Ég tek það á mig að geta ekki spurt hv. þingmann hvort það sé ekki bara hægt að skoða það í framtíðinni hvort þetta væri ekki bara betri leið, vegna þess að Noregur er svo sannarlega sjálfstætt og fullvalda ríki. Sjálfstætt og fullvalda ríki. Við erum að ganga skemur. Markús Sigurbjörnsson er nefnilega þeirrar skoðunar, og það gleymist mjög oft hjá Miðflokksmönnum þegar þeir nefna hann til sögunnar, að hann telur að það væri langbest hreinlega að breyta stjórnarskránni. (Gripið fram í.) Ég velti fyrir mér hvort Miðflokkurinn sé tilbúinn til þess. Ef hann er tilbúinn til þess þá eru það fréttir og þá skulum við bara gera fundarhlé hér og fara að skoða það. (Gripið fram í.)En nú erum við að taka skrefin skemur. Við erum að innleiða almenna (Forseti hringir.) forgangsreglu og ganga skemur. Það er óskiljanlegt hvernig það er ekki hægt að samþykkja það.