158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[16:24]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ágætt og ég vona að við séum að fá það á hreint að það eru sumir hérna sem eru tilbúnir til að standa með EES-samningnum og þá erum við til í samtal um það. En þetta þarf að vera afdráttarlausara frá stjórnarandstöðunni.

Aðeins út af efnahagsmálunum, nokkur atriði: Hallalaus fjárlög 2027, í fyrsta skipti í að verða áratug. Ríkið hættir að reka sig á yfirdrætti og kynda undir þenslu. Ríkisútgjöld eru að fara undir 30% af landsframleiðslu, það lægsta í áratug. Þetta er gert með aðhaldi í ríkisútgjöldum. Mesta aðhald í ríkisútgjöldum í 15 ár. Tekjur ríkisins eru einnig um 30% af landsframleiðslu. Það er svipað hlutfall og undanfarin ár. Við erum búin að fækka ríkisstofnunum um 8% á tveimur árum. Markmiðið er 15% fækkun fyrir lok kjörtímabilsins. Fjölgun ríkisstarfa hefur verið stöðvuð. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði störfum um 15 árið 2025 samanborið við 500 árið áður. Við erum búin að setja af stað innviðasjóðinn Göng og brú. Við erum búin að taka erfiðar ákvarðanir. Það er bara þannig í stjórnmálum, það að fara í ríkisstjórn, að fólk tekur ákvarðanir og lætur ekki verða eitthvert stöðnunartímabil eins og við upplifðum í sjö ár til að mynda í orkumálum. Við erum farin af stað með ákvarðanir í orkumálum til að geta haft svigrúm til að bæta og auka verðmætasköpun. Þetta er umræða sem ég vil gjarnan taka einhvern daginn við hv. þingmann. (Forseti hringir.) En ég vil gjarnan fá það á hreint hvort það sé ekki þannig að við séum saman í því að styðja við EES-samninginn.