158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[16:36]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fór ágætlega yfir það í ræðu minni að við höfum þrjá valkosti. Þetta er fyrri umræða og síðan fáum við umsagnir og sérfræðinga inn í nefndina til að fjalla um málið og endum síðan á því, alla vega meiri hlutinn í nefndinni og nefndin, að leggja til eitthvað inn í seinni umræðuna, hvort sem það verður óbreytt frumvarp, breytt frumvarp eða menn segja að þar sem ESA ákvað að fara hér í dómsmál þá sé það skynsamlegasta leiðin. Ég ætla ekki að kveða upp um það hér í dag. Ég bara segi, og ég vil taka undir með hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni sem ræddi það, að þetta mál hefur kannski fengið óþarflega mikið vægi í umræðunni. Það verður að segjast eins og er að það var ríkisstjórnin sem setti allan þennan þunga í þetta mál. Hún setti það á dagskrá sem fyrsta mál í febrúar 2025, kom með það aftur síðastliðið haust og kláraði það í desember, sem var nú óvanalegt því það var kannski ekki vitað að það yrði klárað í desember í fjárlagavinnunni. Síðan hafði hún allan janúar, febrúar og mars á síðastliðnu þingi, og jafnvel lengur, til að klára málið en þá er því bara hent út um gluggann. Mér finnst stjórnarliðar skulda okkur að svara því af hverju það var ekki gert, af hverju málið var ekki klárað ef það er svona gríðarlega mikilvægt núna. Það er óþægilegt í ljósi þess að það fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort við ætluðum að halda áfram viðræðum við ESB, að þetta séu viðbrögð ríkisstjórnarinnar við því þegar það bætist síðan við að ESA taki ákvörðun um að vísa málinu til EFTA-dómstólsins og þar, einn af þremur stjórnarmönnum, eðlilega frá Íslandi, situr fyrrverandi formaður Samfylkingar. Mér finnst þetta óþægilegt. Ég get ekki að því gert, hv. þingmaður.