158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[16:38]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það hefur komið fram hjá hv. þingmanni að hann hafi lýst undrun sinni yfir því að ríkisstjórnin hafi ekki klárað málið. Ríkisstjórnin leggur málið fram á Alþingi og það er þá Alþingis að fara og klára málið. Þegar það var lagt fram síðast þá voru það 40 klukkustundir og 2. umræðu ekki lokið. Að saka ríkisstjórnina um að hafa ekki klárað málið er svolítið sérstakt þegar það hefur verið í umræðunni klukkustundum og aftur klukkustundum saman hér í þinginu. Það var ágætt að hv. þingmaður rifjaði upp fyrir mér að þetta er að koma inn í þriðja sinn. Nú eru eflaust sömu sérfræðingar að koma í þriðja sinn og flytja eflaust sömu töluna í þriðja sinn inni í utanríkismálanefnd. Samt sem áður virðist það vera vafa undirorpið að hv. þingmaður geti tekið afstöðu til málsins. Mér finnst það undarlegt og ég tel að þessi umræða hér (Forseti hringir.) sé farin að teygjast svolítið á langinn og það hafi allt verið sagt sem segja þarf í málinu.